Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt góðkunningja lögreglu í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka fjórum sinnum undir áhrifum áfengis og kannabis í Reykjavík. Maðurinn var sviptur ökurétti í öll fjögur skiptin. Í eitt skiptið lauk akstrinum með umferðaróhappi á Breiðholtsbraut.
Lögregla stöðvaði manninn fyrst við Hamrastekk 25. janúar síðastliðinn og reyndist hann undir áhrifum áfengis. Sex dögum síðar lenti hann í umferðaróhappinu á Breiðholtsbraut við Reykjanesbraut. Þá mældist vínandamagnið 2,19 prómill, það hæsta í þessum fjórum tilvikum.
Lögregla stöðvaði manninn tvisvar í apríl, fyrst við Árbæ 3. apríl og aftur á Ártúnshöfða 23. apríl og var drukkin í báðum tilvikum.
Dómurinn sakfelldi manninn einnig fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Í október í fyrra fundu lögreglumenn hnúajárn og maríhúana á honum við öryggisleit. Í febrúar fundu lögreglumenn tvö stunguvopn á manninum og síðar maríhúana í veski hans á lögreglustöðinni í Kópavogi.
Maðurinn hafði áður gengist undir sekt fyrir ölvunarakstur í desember 2025. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins og boðaði ekki forföll. Fangelsisrefsingin fellur niður haldi hann almennt skilorð í tvö ár frá birtingu dómsins. Hann er jafnframt sviptur ökurétti í fimm ár frá 19. júní 2027 og greiðir 748.268 krónur í sakarkostnað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir