Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fólk sem finnur fyrir vanlíðan vegna slyssins hvatt til að leita stuðnings.

Áfallahjálp
Áfalla­hjálp Ingi­björg Elín Hall­dórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Rauða kross­ins. Samtökin bjóða skip­verjum af Jökli ÞH og fjöl­skyldum þeirra áfram áfalla­hjálp. Mynd: Rauði Krossinn

Sjálfboða­liðar og starfs­fólk Rauða krossins buðu skip­verjum af Jökli ÞH og aðstand­endum þeirra sálrænan stuðning í gærkvöldi og í nótt eftir að skipið sökk austur af landinu. Þrír skip­verjar fórust í slysinu en fjórtán var bjargað. Rauði krossinn býður skip­verjum og fjöl­skyldum þeirra áfram áfalla­hjálp.

Meðan á björgunar­aðgerðum stóð gegndi hjálpar­sími Rauða krossins, 1717, hlutverki upplýsinga­síma almanna­varna. Þar gátu aðstand­endur fengið upplýsingar um framvindu aðgerð­anna. Þeim var einnig boðið að koma saman í húsnæði útgerðarinnar á Húsavík og í höfuð­stöðvum Rauða krossins í Reykjavík. Á báðum stöðum tóku sjálfboða­liðar úr viðbragðs­hópum Rauða krossins á móti fólki ásamt fulltrúum annarra viðbragðs­aðila.

„Mörg eiga um sárt að binda vegna slyssins og sömuleiðis geta svona alvarlegir atburðir ýft upp gömul sár,“ segir Elfa Dögg S. Leifs­dóttir, sálfræðingur og teymis­stjóri hjá Rauða krossinum.

Elfa hvetur ástvini skip­verjanna, fólk sem tók þátt í björgunar­aðgerðunum og aðra sem finna fyrir vanlíðan vegna slyssins til að leita stuðnings. Hjálpar­síminn 1717 er opinn allan sólar­hringinn og þar geta allir fengið hlustun, stuðning og ráðgjöf.

Þjóð­kirkjan býður þeim sem þess óska samtal við prest eða djákna. Hægt er að óska eftir samtali með tölvu­pósti á [email protected]. Einnig má leita til heilsu­gæslunnar í síma 1700 eða til félags­þjónustu sveitar­félaga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Faðir Sigurðar Helga Hlöðverssonar var meðal sex skipverja sem fórust með Suðurlandi á jólanótt 1986.
Innlent

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Innlent

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Innlent

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Lögregla rannsakar einnig þjófnað úr verslun og hafði afskipti af nokkrum ökumönnum vegna umferðarlagabrota.

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann