Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Þyrlu­flugmaður segir björgunina hafa farið langt út fyrir öryggis­mörk Landhelgis­gæslunnar og kallar eftir umræðu um öryggismál.

Björgunarþyrla
Björg­un­ar­þyrla Sigurður Ásgeirs­son segir aðeins eina af þremur björg­un­ar­þyrlum Gæsl­unnar hafa verið flug­hæfa þegar Jökull ÞH 299 sökk. Mynd: Víkingur

Sigurður Ásgeirsson þyrlu­flugmaður segir að aðeins ein af þremur björgunar­þyrlum Landhelgis­gæslunnar hafi verið flughæf þegar Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær, 25. nóvember. Þrír skip­verjar fórust en fjórtán var bjargað. Sigurður segir áhöfn þyrlunnar hafa unnið björgunar­þrekvirki í illviðri við aðstæður sem hafi verið langt utan öryggis­marka Gæslunnar.

„Að þessu sinni var einungis ein björgunar­þyrla tiltæk á Íslandi og hún var líkt og venjulega staðsett í Reykjavík ásamt hinum tveim sem voru bilaðar. Ekki í fyrsta skipti og ekki í hundraðasta skipti. Á þetta hefur verið bent milljón sinnum,“ skrifar Sigurður á Facebook.

Fór yfir Möðrudalsöræfi í lögreglubíl

Sigurður var sjálfur kallaður út vegna slyssins. „Í þetta útkall mætti ég ekki á þyrlu heldur á lögreglubíl á hæsta forgangi yfir Möðru­dalsöræfi.“

Á Egilsstaða­flugvelli beið hann ásamt áhöfn sinni, reiðu­búinn að leysa áhöfnina frá Reykjavík af ef kraftar hennar þrytu eða leit yrði langvinn. Á meðan flaug þyrlan frá Reykjavík með suður­ströndinni í illviðri og tók eldsneyti á Horna­firði á leið á slysstað. Að sögn Sigurðar höfðu skip­verjarnir sautján verið fimm klukku­stundir í sjónum, klæddir björgunar­göllum, þegar þeir voru hífðir um borð.

„Á meðan pizzuáti minnar áhafnar stóð vann áhöfnin á starfhæfu þyrlunni björgunar­þrekvirki sem lengi verður í minnum haft,“ skrifar hann.

Segir áhöfnina hafa farið langt út fyrir öryggismörk

Sigurður lýsir hættunni sem hann telur að þyrlu­áhöfnin og skip­verjarnir hafi staðið frammi fyrir við björgunina.

„Leiðangurinn sem farinn var er langt utan þeirra öryggis­marka sem Landhelgis­gæslan hefur. Sjálfsmorðs­leiðangur þar sem þyrlu­áhöfnin, sigmenn sem niður fóru og eftir­lifendur sjóslyssins hefðu líklegast týnt lífi ef eitthvað hefði farið úrskeiðis. Líflínan þeirra var biluð þyrla í Reykjavík og þyrlu­áhöfn að éta pizzur á Egilsstaða­flugvelli.“

Hann minnist þeirra sem fórust. „Þrír af þessum sautján munu ekki sameinast fjöl­skyldum sínum aftur. Megi guð blessa þá.“ Jafnframt lýsir hann þakklæti fyrir þá sem komust lífs af. „Gleðin er þó að 14 mönnum var bjargað. Fyrir það ber að þakka.“

Sigurður segist gera sér grein fyrir að gagnrýnin geti haft afleiðingar fyrir hann í starfi. „Mögulega eiga þessi skrif eftir að kosta mig vinnuna eða í það minnsta eina væna áminningu í starfi. Það verður þá að hafa það.“

Hann hvetur landsmenn til að halda umræðunni um öryggismál á lofti og lýkur máli sínu með áskorun. „Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Fordómar eiga ekki að skilgreina okkur
Innlent

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Lögregla rannsakar einnig þjófnað úr verslun og hafði afskipti af nokkrum ökumönnum vegna umferðarlagabrota.

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann