Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þorsteinn kennir uppljóstraranum Jóhannesi um allt saman: „Áttum að hafa betra eftirlit í Namibíu“

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, held­ur áfram að kenna Jó­hann­esi Stef­áns­syni uppljóstrar um meintar „óeðli­leg­ar“ greiðslur útvegs­fyrir­tækisins í Namib­íu. Forstjórinn segir það uppljóstraranum einum að kenna og að mistök fyrir­tækisins í mútu­málinu hafi verið sú að fylgjast ekki betur með Jóhannesi.

Sam­herji hef­ur hins vegar aldrei rökstutt hvers vegna meintar mútu­greiðsl­ur frá Sam­herja­fé­lög­um til „há­karl­anna“ svököll­uðu í Namibíu héldu áfram í þrjú ár eft­ir að Jó­hann­es hætti hjá fyrir­tækinu.

Þorsteinn Már segir aftur á móti að ef fyrirtæki Samherja hafi greitt „óeðlilegar greiðslur“ í Namibíu þá séu þær alfarið á ábyrgð Jóhannesar. Sá síðanfendi var framkvæmda­stjóri Samherja í Namibíu á árunum 2012 til 2016. Þorsteinn ræddi mútúmálið í viðtali við  Fréttablaið í dag. Þar sagði Þorsteinn:

„Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólög­mætar þá voru þær á ábyrgð Jóhann­esar Stef­áns­sonar sem stýrði og bar ábyrgð á rekstr­inum í Namibíu.“

Þorsteinn Már var aftur á móti ekki spurður að því hvernig Jóhannes á að hafa geta borið ábyrgð á greiðslum frá félögum Samherja í Namibíu og annars staðar, meðal annars á Kýpur, sem héldu áfram í þrjú ár eftir að hann hætti hjá fyrir­tækinu í Namibíu.

Fylgust ekki nógu vel með Jóhannesi

Í samtali við Frétta­blaðið fullyrti Þorsteinn Már að Samherji komi til með að grípa til varna í dómsmáli í Namibíu. Hann segir allar ásakanir á hendur fyrir­tækinu ekki á rökum reistar.

„Við teljum að þessar ásakanir séu ekki á rökum reistar og ég hafði ekki vitneskju um neinar óeðlilegar greiðslur ef þær áttu sér stað á annað borð. Þessar ásakanir byggja meira og minna á full­yrðingum Jóhannesar og brota­kenndum gögnum sem eiga að styðja þær en gera það ekki í raun. Þegar trúverðug­leiki Jóhannesar er metinn þá verður að hafa hugfast að hann var rekinn sumarið 2016 vegna þess að hann hefði engin tök á starfseminni og sýndi af sér óforsvaranlega háttsemi á meðan hann stýrði útgerðinni í Namibíu. Þá hefur verið upplýst að hann hafði áform um að fara á bak við Samherja og hefja rekstur með öðru útgerðar­fyrirtæki stuttu áður en honum var sagt upp störfum,“ sagði Þors­steinn og bætti við:

„Mistök Samherja fel­ast í því að hafa ekki haft betra eft­ir­lit með rekstr­inum í Namibíu og þar af leið­andi betri yfir­sýn.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum