Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sölva Snæ Sigurðarson í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á lögreglumann við skyldustörf. Dómurinn var kveðinn upp 26. nóvember.
Árásin átti sér stað laugardaginn 17. janúar á þessu ári. Sölvi sló lögreglumanninn einu sinni í brjóstkassann í lögreglubifreiðinni og gaf honum olnbogaskot í andlitið. Höggið lenti við vinstri augabrún lögreglumannsins. Í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar sparkaði Sölvi síðan aftan í hægra læri hans.
Sölvi játaði brotið skýlaust og taldi dómurinn sök hans sannaða með játningunni og öðrum gögnum málsins.
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að Sölvi hafði leitað sér aðstoðar og lýst yfir iðrun. Hvort tveggja var virt honum til málsbóta ásamt skýlausri játningu hans.
Fullnustu fangelsisrefsingarinnar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum frá birtingu dómsins haldi Sölvi almennt skilorð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir