Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Matvælastofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkenna­lausir hundar geta dreift smiti og hefð­bundin bóluefni gegn smáveiru­sótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Á göngu
Á göngu Mat­væla­stofnun metur hvort ástæða sé til að auka skimun eða breyta skil­yrðum fyrir inn­flutn­ingi doberman­hunda. Mynd: Víkingur

Matvæla­stofnun fylgist með útbreiðslu amdoparvoveiru sem greinst hefur í dobermanhundum í nokkrum Evrópu­löndum á undan­förnum mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvæla­stofnun.

Samkvæmt tilkynningunni eru staðfest tilfelli færri en 15, þar af sjö sem nýlega greindust í Noregi. Tilfelli hafa einnig greinst í Serbíu og Búlgaríu.

Rann­sóknir hafa staðfest að veiran getur borist milli heimilis­hunda. Staðfest smit í hundum hafa hingað til einskorðast við dobermanhunda og er til skoðunar hvort aðrir hundar geti einnig smitast. Enn er óljóst hvernig veiran berst milli hunda, hversu smitandi hún er og hversu langur tími líður frá smiti þar til einkenni koma fram.

Einkennalausir hundar geta borið smit

Meðal einkenna sem lýst hefur verið eru rennsli úr augum og nefi, þyngdartap og breytingar á húð og feldi. Í alvarlegum tilfellum hefur orðið vart við truflanir á starfsemi innri líffæra og einkenni frá tauga­kerfi. Dæmi eru um að hundar geti dreift smiti án þess að sýna einkenni.

Veiran er af sömu veiru­fjölskyldu og sú sem veldur smáveiru­sótt í hundum. Hefð­bundin bóluefni gegn smáveiru­sótt virðast þó ekki veita vörn gegn þessari veiru. Afbrigðið sem um ræðir hefur áður greinst í villtum refum og þvotta­björnum erlendis.

Aukin skimun kemur til greina

Matvæla­stofnun aflar og yfirfer vísinda­gögn um veiruna og leggur jafnframt mat á hættuna á að hún berist til Íslands með innfluttum hundum. Stofnunin mun meta, eftir því sem frekari upplýsingar liggja fyrir, hvort ástæða sé til að auka skimun eða breyta skilyrðum fyrir innflutningi dobermanhunda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný