Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ökklabrotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum málskostnað

Héraðs­dómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miska­bætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.

Við Hólmgarð
Við Hólmgarð Dómurinn taldi öku­mann­inn hafa sýnt af sér gáleysi þegar hann ók á konu á gang­braut, en ekki stór­fellt gáleysi. Mynd: Skjáskot/ja.is

Héraðs­dómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af kröfu konu sem fór fram á tvær milljónir króna í miska­bætur eftir að hann ók á hana á gangbraut í Reykja­nesbæ. Konan ökkla­brotnaði við áreksturinn. Dómurinn taldi manninn hafa sýnt af sér gáleysi en að það hefði ekki verið stórfellt. Konunni var gert að greiða honum 310 þúsund krónur í máls­kostnað.

Slysið varð 16. nóvember 2025 þegar maðurinn beygði af Vestur­götu inn á Hólmgarð. Konan sagðist hafa numið staðar við gangbrautina þegar hún sá bifreiðina. Aðrir vegfarendur voru að ganga yfir götuna og fór konan þá einnig af stað þar sem henni virtist bifreiðin hafa stöðvast.

Maðurinn sagði lögreglu að hann hefði fært farsíma sinn úr bilinu milli sætanna yfir í farþega­sætið til að koma í veg fyrir að hann félli í gólfið. Hann kvaðst hafa séð konuna of seint til að ná að hemla.

Maðurinn hafði áður játað umferðar­lagabrot og að hafa valdið konunni líkams­meiðingum af gáleysi. Hann hafnaði hins vegar kröfu hennar um miska­bætur. Dómurinn taldi ósannað að maðurinn hefði horft á símann þegar slysið varð eða notað hann í skilningi umferðar­laga. Þá benti ekkert til þess að hann hefði ekið of hratt. Að mati dómsins voru því ekki uppfyllt skilyrði til að dæma konunni miska­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og var fyrr á árinu dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttar.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta