Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að bifreið manns sem sviptur er ökurétti ævilangt skuli vera í haldi lögreglu. Maðurinn er grunaður um að hafa ekið bifreiðinni fimm sinnum í september og október þrátt fyrir sviptinguna.
Lögregla lagði hald á bifreiðina, sem er Skoda Octavia, 19. október í kjölfar síðasta atviksins. Maðurinn kvaðst hafa verið á gangi þegar lögreglu bar að garði. Hann krafðist þess að fá bifreiðina afhenta og sagði vini og ættingja hafa ekið sér milli staða gegn því að hann legði til bílinn. Héraðsdómur taldi þá skýringu lítt trúverðuga.
Maðurinn hefur ítrekað hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot. Fyrr á þessu ári var hann dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að aka þrisvar sviptur ökurétti. Í eitt skiptið ók hann undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Með dóminum var ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð.
Maðurinn taldi lögreglu ekki hafa sýnt fram á nauðsyn áframhaldandi haldlagningar. Hann benti á að engin ákæra hefði verið gefin út vegna atvika sem væru til rannsóknar og að fyrri sakfellingar leiddu ekki sjálfkrafa til upptöku bifreiðarinnar.
Landsréttur leit til sakaferils mannsins og þeirra brota sem hann er grunaður um. Taldi rétturinn að skilyrði til að gera bifreiðina upptæka með dómi kynnu að vera uppfyllt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir