Skatturinn hefur sent frá sér áminningu um að húseigendur hafi til og með mánudeginum 30. nóvember til að sækja um að nýta séreignarsparnað afturvirkt til greiðslu inn á höfuðstól húsnæðislána.
Berist umsókn fyrir 1. desember má ráðstafa iðgjöldum sem greidd hafa verið frá 1. janúar 2026 inn á lánið, upp að leyfilegu hámarki ársins. Umsóknir sem berast 1. desember eða síðar gilda frá og með umsóknarmánuði.
Lögin tóku gildi 1. október og heimila mánaðarlegar greiðslur inn á húsnæðislán í allt að tíu ár. Umsækjandi þarf að eiga minnst 30 prósenta hlut í húsnæðinu, eiga þar lögheimili og vera með lán sem tryggt er með veði í eigninni.
Sótt er um á þjónustuvef Skattsins. Þar velur umsækjandi séreignarsjóð og lán. Hjón og sambúðarfólk sækja um hvort fyrir sig. Fyrsta greiðsla getur borist einum til þremur mánuðum síðar. Þeir sem eru með virka umsókn vegna kaupa á fyrstu íbúð þurfa ekki að sækja um aftur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir