Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur gagnrýnir skrif sem hann segir hafa birst á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að þrír sjómenn fórust þegar Jökull ÞH sökk austur af landinu á miðvikudag. Í færslu á Facebook segir hann að skipverjarnir sem björguðust hafi varla verið komnir í land þegar fólk tók að nota slysið til að gera lítið úr stuðningi við hinsegin fólk, hælisleitendur og Úkraínu.
„Er bara aldrei hægt að setja niður hnefana og bara vera þjóð saman í smá stund? Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ spyr Svavar.
Hann segir hugann leita til fjölskyldnanna sem eiga um sárt að binda, til stólanna sem munu standa auðir við stofuborðið um jólin og barnanna sem hafa misst föður sinn. Svavar telur sjálfsagt að krefjast þess að Landhelgisgæslan fái nægt fjármagn. Hann spyr hins vegar hvernig skrif af þessu tagi styðji við bakið á fjölskyldunum eða heiðri minningu þeirra sem fórust.
Fjölmargir tóku undir orð Svavars í athugasemdum við færsluna. Meðal þeirra var Einar Steinn Valgarðsson, sem kvaðst hafa rekist á nokkur slík innlegg. „Það er fátt sem mér finnst jafn auvirðilegt og að nýta neyð fólks til að hnýta í annað fólk í neyð,“ skrifaði hann.
Ingibjörg Ottesen sagðist einnig hafa orðið vör við slíkan málflutning hjá fólki sem hún hefði haft álit á. Annar lesandi sagðist enga slíka umræðu hafa séð og spurði hvaða skrif Svavar ætti við.
Hugrún Pétursdóttir hvatti fólk til að sýna aðstandendum samkennd og þakka þeim sem komu að björguninni. „Sendum aðstandendum hlýju og kærleik. Öllum sem að þessari mögnuðu björgun komu, þakklæti.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir