Ráðstöfunartekjur skiptust jafnast á Íslandi af löndum Evrópu árið 2025 og hlutfall fólks sem bjó við hlutfallslega fátækt var hér lægst. Þetta kemur fram í niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands sem birtar voru í vikunni. Innan við eitt prósent fólks á Íslandi býr við efnislegan eða félagslegan skort samkvæmt viðmiðum rannsóknarinnar.
Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum, sem mælir hvernig ráðstöfunartekjur dreifast meðal landsmanna. Því lægri sem stuðullinn er, því jafnari er tekjuskiptingin.
Þrjú af hverjum fjórum heimilum eiga auðvelt með að ná endum saman
Alls segjast 75 prósent íslenskra heimila eiga auðvelt með að ná endum saman. Hlutfallið hefur aldrei verið hærra í rannsókninni. Einstæðir foreldrar eiga erfiðast með að ná endum saman af þeim hópum sem niðurstöðurnar ná til.
Fjárhagsstaða heimila hefur í heild lítið breyst frá árinu 2021 og svipað hlutfall glímir við fjárhagserfiðleika. Þróunin er þó ólík eftir aldri. Fleira ungt fólk á nú erfitt með að ná endum saman en árið 2021. Meðal eldra fólks hefur þeim hins vegar fækkað sem segjast eiga í slíkum erfiðleikum.
Húsnæðiskostnaður vegur þyngra hjá fólki með íbúðalán
Byrði húsnæðiskostnaðar hefur aukist hjá fólki með íbúðalán frá árinu 2021. Í þeim hópi eiga jafnframt fleiri erfitt með að ná endum saman en þá. Hjá leigjendum hefur byrði húsnæðiskostnaðar lítið breyst á sama tímabili.
Í lífskjararannsókninni eru heimili spurð um fjárhag sinn og svörin tengd við gögn sem Hagstofan hefur þegar undir höndum. Sambærilegum upplýsingum er safnað í öðrum Evrópulöndum. Sumir þeirra mælikvarða sem Hagstofan birti í vikunni höfðu ekki verið uppfærðir í nokkur ár.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir