Ástralski glímukappinn Jermaine Haley, sem keppti undir nafninu Bronson Reed, lést föstudaginn 27. nóvember, 38 ára að aldri. WWE tilkynnti um andlátið og sagði Haley hafa látist af völdum læknisfræðilegra fylgikvilla. Frekari upplýsingar um dánarorsök komu ekki fram í tilkynningunni.
Í tilkynningunni lýsti WWE honum sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni. Fyrirtækið vottaði eiginkonu hans og dóttur þeirra og öðrum ástvinum samúð. Paige á von á öðru barni þeirra.
Kom síðast fram í Sádi Arabíu
Haley kom síðast fram fyrir WWE á Crown Jewel viðburðinum í Ríad 7. nóvember. Þar kastaði glímukappinn Oba Femi honum fram af sviðinu og í gegnum nokkur borð í atriði í tengslum við keppni um heimsmeistaratitil.
Samkvæmt umfjöllun Uncrowned rifbrotnaði Haley á nokkrum stöðum og hlaut áverka á nýra. Hann dvaldi á sjúkrahúsi í Sádi Arabíu í rúma viku og fór í aðgerð áður en hann sneri heim til að jafna sig. WWE hefur ekki greint frá því hvort áverkarnir tengdust andláti hans.
Vann meistaratitil hjá NXT
Haley fæddist í Adelaide í Ástralíu árið 1988 og hóf feril sinn í atvinnuglímunni árið 2007. Hann keppti um árabil hjá sjálfstæðum glímusamtökum í Ástralíu og víðar, meðal annars undir nafninu Jonah Rock. Hann samdi við WWE árið 2019 og vann Norður Ameríkumeistaratitil NXT. Hann lét af störfum hjá WWE árið 2021 og sneri aftur árið 2022.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir