Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Lögreglumaður dró upp byssu vegna hádegismatar samstarfsmanns

„Þetta atvik end­ur­speglar ekki þau gildi sem karlar og konur í lög­regl­unni í Myrtle Beach sýna af sér á hverjum degi“

Lögreglumaður dró upp byssu vegna hádegismatar samstarfsmanns
Missti starfið Michael DeBiase var rek­inn úr lög­regl­unni í Myrtle Beach eftir að hafa miðað skamm­byssu á sam­starfs­mann sinn vegna lyktar af fiski sem hann hit­aði í örbylgju­ofni. Mynd: Skrifstofa sýslumanns Horry-sýslu

Lög­reglu­maður sem dró upp skamm­byssu og mið­aði henni á sam­starfs­mann vegna þess að hann hit­aði fisk í örbylgju­ofni hefur misst starfið og verið sviptur lög­reglu­rétt­indum sínum til fram­búðar.

Michael DeBiase, 46 ára, virð­ist hafa verið svo ósáttur við hádeg­is­mat sam­starfs­manns síns að hann dró upp skamm­byssu sem lög­reglu­emb­ættið hafði útvegað honum og mið­aði henni á mann­inn.

Atvikið átti sér stað í höf­uð­stöðvum lög­regl­unnar í Myrtle Beach í Suður-Karólínu þann 30. maí síð­ast­lið­inn en sagt var frá mál­inu í fjöl­miðlum í gær.

Það sem hófst sem ágrein­ingur um umgengn­is­reglur í eld­húsi á vinnu­stað end­aði með því að DeBiase var ákærður fyrir alvar­legt afbrot og eyði­lagði starfs­feril sinn eftir að hafa játað brot gegn alls­herj­ar­reglu.

Fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn var dæmdur í 90 daga skil­orðs­bundið fang­elsi, sektaður um 350 dali, sem sam­svarar um 42 þús­und krónum, og gert að skila lög­reglu­rétt­indum sínum í Suður-Karólínu fyrir fullt og allt. Samkvæmt sam­komu­lag­inu þarf hann jafn­framt að skuld­binda sig til að sækj­ast aldrei eftir því að fá rétt­indin aftur.

Samkvæmt gögnum úr dóms­máli sem vef­mið­ill­inn The Smoking Gun hefur undir höndum hófst málið þegar sam­starfs­fé­lagi DeBiase ákvað að hita fisk í örbylgju­ofni á skrif­stof­unni.

Lyktin sem fylgdi því féll greini­lega ekki í kramið hjá DeBiase, sem leit­aði uppi sam­starfs­mann sinn í fund­ar­her­bergi lög­regl­unnar, að því er Daily Mail greinir frá.

Í stað þess að leysa málið með sam­tali, kvörtun eða jafn­vel óbeinum skila­boðum á miða á ísskápnum er DeBiase sagður hafa gripið til byssunnar. Rann­sak­endur segja að hann hafi tekið hana úr hulstr­inu og miðað henni á sam­starfs­mann sinn.

Í hand­töku­skipun kemur fram að DeBiase hafi gengið að lög­reglu­mann­inum vegna þess að hann „hit­aði fisk í örbylgju­ofn­inum og olli þannig ólykt á skrif­stof­unni“.

Sam­starfs­mað­ur­inn, sem ekki hefur verið nafn­greindur opin­ber­lega, gaf síðar skýrslu til rann­sak­enda.

DeBiase gaf einnig sína frá­sögn af atburða­rásinni, en upp­lýs­ingar um skýr­ingar hans hafa ekki verið gerðar opin­berar.

Hann var þegar í stað settur í leyfi á meðan skrif­stofa fag­legra staðla innan lög­regl­unnar og lög­reglu­yf­ir­völd Suður-Karólínu rann­sök­uðu málið.

Innri rann­sókn leiddi í ljós að DeBiase hafði brotið gegn fjölda reglna lög­regl­unnar og var hann í kjöl­farið rek­inn. Lög­reglu­emb­ættið tók skýrt fram að hegðun hans væri langt undir þeim kröfum sem gerðar væru til lög­reglu­manna.

„Þetta atvik end­ur­speglar ekki þau gildi sem karlar og konur í lög­regl­unni í Myrtle Beach sýna af sér á hverjum degi,“ sagði í yfir­lýs­ingu emb­ætt­is­ins.

DeBiase var hand­tek­inn 2. júní og upp­haf­lega ákærður fyrir að beina skot­vopni að ein­stak­lingi, sem telst alvar­legt afbrot sam­kvæmt lögum Suður-Karólínu.

Hann var vistaður í J. Reuben Long-fang­els­inu í Horry-sýslu en síðar lát­inn laus gegn 5.000 dala trygg­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Nýjar myndir úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar benda til þess að hægt hafi á niðurbroti Kolbeinseyjar.
Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Sport

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Heimur

Heimur

Bridget Fonda sést opin­ber­lega í fyrsta sinn í langan tíma

„Það er svo gott að vera bara venjuleg manneskja.“
Heimur

Nicole Taylor úr kán­trýsveit­inni Taylor Red látin, 35 ára að aldri

Heimur

Sextugur maður sló óvenju­legt heims­met með ótrú­legri þraut­seigju

Heimur

Paris Jackson krefst 600 millj­óna dala úr dán­ar­búi föður síns

Heimur

Ísraelsk leik­kona hélt að slökkt væri á hljóð­nem­anum og gagn­rýndi Ísrael

Heimur

Trump missir tökin yfir þing­inu