Nicole Taylor, sem var meðlimur Kántrýtríósins Taylor Red ásamt eineggja þríburasystrum sínum, Niku og Natalie Taylor, lést 28. september eftir baráttu við brjóstakrabbamein. Systur hennar greindu frá andlátinu. Nicole var 35 ára.
„Við erum harmi slegnar og í áfalli yfir því að þurfa að tilkynna andlát systur okkar, Nicole Taylor. Þetta er ekki myndbandið sem við héldum að við myndum nokkurn tíma þurfa að taka upp,“ sagði Natalie við hlið Niku í myndbandi sem þær birtu á YouTube 2. nóvember.
„Við erum enn að reyna að átta okkur á öllu. Það er virkilega erfitt að tala um þetta, en við ætlum að gera okkar besta til að segja frá sögu hennar.“
Systurnar stofnuðu sveitatónlistartríóið Taylor Red, sem áður hét Red Roots, árið 2011. Þær náðu þó ekki miklum vinsældum fyrr en árið 2021 þegar lag þeirra, „Country Money“, fór á flug á samfélagsmiðlum.
Nika og Natalie greindu frá því að Nicole hefði greinst með mjög ágengt brjóstakrabbamein á þriðja stigi ári síðar, árið 2022.
Þær höfðu vonast eftir góðum bata, en Nika sagði að þær hefðu nú fundið frið í þeirri vissu að Nicole væri laus undan þjáningum.
„Við héldum að hún yrði hér með okkur og segði frá því hvernig henni hefði batnað hér á jörðu, en í staðinn erum við hér að segja frá lækningu hennar á himnum,“ sagði Nika.
Systurnar rifjuðu báðar upp augnablikið þegar þær voru með eldri systur sinni þegar hún fékk greininguna.
„Ég man bara að ég brotnaði algjörlega niður úr áfalli,“ sagði Natalie. „Ég var svo hissa. Við höfum verið svo heppnar að búa við góða heilsu alla ævi og þetta kom því mjög mikið á óvart. Við áttum alls ekki von á þessu.“
Hún bætti við að hún hefði grátið og hlaupið fram á gang til að segja Niku tíðindin. Nicole hefði þá sagt: „Guð mun nota þetta sér til dýrðar.“
Nicole brást vel við meðferðinni og á einum tímapunkti var henni sagt að engin merki væru um krabbamein í líkamanum. Sjúkdómurinn tók sig hins vegar upp aftur og hafði þá þróast yfir á fjórða stig. Þá var henni sagt að hún ætti aðeins um þrjá mánuði eftir ólifaða.
Nicole lét þó ekki þær spár stöðva sig og hélt áfram að berjast af miklu hugrekki. Hún lifði í eitt ár til viðbótar áður en hún lést í september.
Í kjölfar missisins sagði Natalie að trú hennar hefði styrkst enn frekar.
„Ég hef verið kristin lengi og svona reynsla getur annaðhvort fært mann nær Guði eða fjarlægt mann frá honum. Þessi raun hefur fært mig nær honum. Ég veit ekki hvernig nokkur maður gæti komist í gegnum svona án Guðs,“ sagði hún.
Systurnar staðfestu á vefsíðu sveitarinnar að fjölskyldan hefði haldið útför Nicole í kyrrþey.
„Nicole, sem var elst okkar þriggja systra, verður sárt saknað,“ sögðu þær.
„Hún var leiðtogi okkar og besta vinkona. Við erum harmi slegnar, en vitum að hún er á himnum og að við munum hitta hana aftur.“































Athugasemdir