Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og von­svikin“ eftir langan starfs­feril.

Hildi sagt upp hjá borginni
Hildur Lilli­endahl Mynd: Instagram

Bar­áttu­konan og verk­efna­stjór­inn Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir var á leið til útlanda í dag þegar hún sá fréttir um að borg­ar­stjórn Reykja­víkur væri á lok­uðum fundi um nið­ur­skurð í star­femi borg­ar­innar. Hildur hefur verið starfs­maður borg­ar­innar í 18 ár.

„Um klukkan 16 í gær kvaddi ég vinnu­fé­laga mína og sagði „sjá­umst á mánu­dag­inn“ eftir að hafa und­ir­búið fjög­urra daga fjar­veru mína eins ræki­lega og ég mögu­lega gat. Í morgun sat ég á Kefla­vík­ur­flug­velli og sá fréttir um leyni­fund í Ráð­hús­inu. Spurði skrif­stof­una hvað væri að ger­ast en fékk engin svör,“ skrifar Hildur á Facebook-síðu sína.

Hún steig upp í flug­vél­ina. Á meðan flug­inu stóð þró­uð­ust málin áfram hjá borg­inni.

„Á meðan ég var í flugi fékk ég fund­ar­boð, sem ég eðli­lega sá ekki, og í rúllu­stiga á flug­velli á leið í lest fékk ég upp­sagn­ar­bréf frá Reykja­vík­ur­borg á ísland punktur is. Svo kom ein­hver póstur um að yfir­manni mínum þætti leið­in­legt að ég hafi ekki kom­ist á fund­inn áður en ég var rekin og mér bent á mér standi til boða að tala við eitt­hvað fólk eða ein­hverja sál­fræði­stofu en ekki væri óskað eftir frekara vinnu­fram­lagi frá mér.“

Hildi er orða vant eftir að hafa fengið upp­sögn­ina.

„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Átján og hálft ár. Ég hef sinnt starf­inu mínu af svo ógeðs­lega mik­illi sam­visku­semi og metn­aði að stundum hefur mér fund­ist ég ganga alltof langt og fram af sjálfri mér. Mér hefði þótt örlítið meiri sómi af því að kannski þakka mér fyrir þessa tæpu tvo ára­tugi eða ... eða bara eitt­hvað. En svona er þetta. Ég er sár og leið og reið og von­svikin en ég er í útlöndum í nokkra daga og ætla að reyna að njóta þess. Svo kemur bara nóv­em­ber og ég fer að æfa mig í nýju lífi.“

Hildur hefur verið mikið á milli tann­ana á fólki og til umfjöll­unar í fjöl­miðlum vegna hisp­urs­lausrar tján­ingar og bar­áttu fyrir rétt­indum kvenna. Sumarið 2020 velti stjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son því upp hvers vegna Hildur héldi vinn­unni hjá Reykja­vík­ur­borg, vegna þess að hún var upp­vís að grófum ummælum á net­inu árið 2014.

Árið 2017 kall­aði Hildur sjón­varps­mann­inn Sindra Sindason „epal­homma“, sem varð til þess að útvarps­mað­ur­inn Heimir Karlsson, sem starf­aði hjá sama fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, velti því upp hvort hún yrði látin líða fyrir tján­ing­una sem opin­ber starfs­maður. „Epal­hommi“ var síðan valið orð árs­ins 2017 í kosn­ingu sem RÚV, Stofnun Árna Magn­ús­sonar og Mímir, félag stúd­enta í íslensku og almennum mál­vís­indum við Háskóla Íslands stóðu að.

Í færslu sinni í kvöld seg­ist Hildur hafa „óskap­lega lít­inn áhuga á að lesa athuga­semdir frá ókunn­ugum sem fagna þessu per­sónu­lega áfalli mínu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina