Lítill rannsóknardróni hefur skilað vísindamönnum einstökum gögnum eftir að hafa eytt átta mánuðum undir gríðarþykkum íshellum á Suðurskautslandinu en Lifandi Vísindi segir frá málinu.
Dróninn var sendur í leiðangur árið 2023 og barst með hafstraumum langt undir ísinn. Þar var ekki hægt að hafa samskipti við hann, en níu mánuðum eftir að hann lagði af stað kom hann aftur upp á yfirborðið undan Denman- og Shackleton-íshellunum í Austur-Suðurskautslandinu.
Gögnin veita sjaldgæfa innsýn í hafsvæði sem vísindamenn hafa átt afar erfitt með að rannsaka. Niðurstöðurnar gætu jafnframt hjálpað til við að spá fyrir um hækkun sjávarstöðu á næstu áratugum.
Mælingar drónans benda til þess að heitt vatn geti náð alla leið að botni undir Denman-íshellunni og brætt ísinn innan frá. Það vekur áhyggjur þar sem ísinn í jöklinum samsvarar um 1,5 metra hækkun sjávarstöðu á heimsvísu ef hann bráðnar allur.
Shackleton-íshellan virðist hins vegar stöðug eins og er.
„Við vorum heppin. Drónann rak inn undir ísinn og hann eyddi átta mánuðum undir íshellunum,“ segir haffræðingurinn Steve Rintoul hjá áströlsku vísindastofnuninni CSIRO.
Rannsóknardrónar safna gögnum á mismunandi dýpi og senda þau til gervitungla. Undir íshellunum rofnar hins vegar öll slík fjarskipti. Vísindamenn gátu þó notað snertingar drónans við ísinn til að átta sig á ferðum hans og vinna úr mælingunum nýtt kort af hafsvæðinu.
Rintoul segir að tækið hafi, þrátt fyrir smæð sína og afar erfiðar aðstæður, skilað vísindamönnum ómetanlegum upplýsingum um viðkvæmni íshellanna.





































Athugasemdir