Átján ára piltur lést og sex aðrir særðust í skotárás í náttfataveislu í húsi í Davenport í Flórída á þakkargjörðardaginn. Fimmtán ára stúlka er í lífshættu en áverkar hinna fimm eru ekki taldir lífshættulegir, að sögn lögreglu.
Grady Judd, lögreglustjóri í Polk-sýslu, sagði á blaðamannafundi að um 50 ungmenni frá Orlando hefðu mætt í veisluna eftir að hún var auglýst á netinu undir heitinu „Girls Gone Wild“. Sextán ára stúlka skipulagði veisluna en fullorðinn einstaklingur leigði húsið fyrir hennar hönd í gegnum Airbnb.
Að sögn Judds hóf hinn átján ára Oral Walker skothríð eftir að gestirnir voru komnir í húsið. Annar gestur er talinn hafa skotið á móti með þeim afleiðingum að Walker lést. Gesturinn yfirgaf síðan vettvang.
Judd sagði mögulegt að gesturinn hefði skotið í sjálfsvörn og hvatti hann til að gefa sig fram við lögreglu og ræða við rannsakendur.
Þau sex sem særðust í skothríðinni eru á aldrinum 15 til 21 árs.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir