Linda Björk Markúsardóttir, móðir eins skipverjanna sem björguðust þegar Jökull ÞH 299 sökk miðvikudaginn 25. nóvember, þakkar viðbragðsaðilum fyrir að hafa bjargað syni sínum og þrettán skipsfélögum hans. Í pistli sem birtist í dag á Vísi lýsir hún óvissunni sem fjölskyldan bjó við á meðan beðið var frétta af björguninni.
Þrír skipverjar fórust þegar Jökull sökk um 60 sjómílur austur af landinu. Fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Beið frétta af frumburði sínum
Linda segir að fjölskyldan hafi vitað að skipið væri sokkið og öll áhöfnin komin í sjóinn. Hjálp hafi verið á leið úr mörgum áttum en biðin hafi reynst fjölskyldunni erfið.
„Á meðan við fjölskyldan grétum, fylltumst örvæntingu, þrömmuðum um gólf og nöguðum neglurnar niður í kviku voru viðbragðsaðilar að ráða ráðum sínum og þvílík og önnur eins ráð!“ skrifar hún.
Linda þakkar viðbragðsaðilum fyrir útsjónasemi og fórnfýsi og minnist jafnframt mannanna þriggja sem fórust.
„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Kallar eftir góðum vinnuaðstæðum og nægum fjölda þyrlna
Linda veltir því fyrir sér í pistlinum hvernig hægt sé að þakka þeim sem komu syni hennar og skipsfélögum hans til bjargar. Hún segir góðar vinnuaðstæður og nægan fjölda þyrlna vera lágmarkið.
„Eitt er þó á hreinu, hetjusæmandi vinnuaðstæður og hæfilegur fjöldi þyrlna er gólfið þar, ekki þakið.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir