Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.

Birgir Þórarinsson, Daníel Ágúst Haraldsson og Margrét Rán Magnúsdóttir úr GusGus
Birgir Þór­ar­ins­son, Daníel Ágúst Har­alds­son og Margrét Rán Magn­ús­dóttir úr GusGus Sveitin gefur út plöt­una Rewind and Replay í apríl 2027. Mynd: Golli

GusGus gefur út plötuna Rewind and Replay í apríl 2027. Titil­lagið er óður til reifsins á tíunda áratugnum og þeirrar tilfinningar að ganga inn á klúbb og gefa sig tónlistinni á vald. Birgir Þórarinsson, Daníel Ágúst Haraldsson og Margrét Rán Magnúsdóttir ræða í viðtali við Mannlíf um plötuna, unga tónleika­gesti í Laugar­dalshöll, aðdáendur víða um heim og hvers vegna það þarf að vera hægt að stofna hljómsveit án þess að það kosti mikið.

Fjölmargir listamenn hafa komið við sögu GusGus á þeim rúmu þrjátíu árum sem sveitin hefur starfað. Undan­farin ár hefur hún verið skipuð Birgi, sem jafnan er kallaður Biggi veira, Daníel Ágústi og Margréti, sem jafnframt er söngkona Vök. Sveitin fagnaði þrjátíu ára starfs­afmæli sínu í Laugar­dalshöll í fyrra og sneri aftur í höllina í lok maí. Á árinu hefur hún jafnframt unnið að nýju plötunni, farið í tónleika­ferð um Austur-Evrópu og spilað í Austurbæjar­bíói í samstarfi við Iceland Airwaves.

Vildu halda dansiball allan tímann

Daníel Ágúst segir vinnuna við nýju plötuna hafa tekið mestan tíma á árinu. Tónleikarnir í Laugar­dalshöll hafi báðir heppnast vel, þótt kvöldin hafi verið ólík.

„Það var miklu meiri gesta­gangur á afmælis­tónleikunum, þá fórum við náttúru­lega í gegnum áratugina sem við höfum starfað. Við lögðum svo meiri áherslu á hvernig hljóm­sveitin er í dag á síðustu hallar­tónleikum í lok maí á þessu ári,“ segir hann.

„Það var svona, já, meira við og það er stefnan í fram­tíðinni að vera bara við.“

Sama áhersla hafi verið á tónleikunum í Austurbæjar­bíói. Þar hafi þau sýnt hvernig GusGus hljómar í dag og kynnt nýja efnið, sem Daníel Ágúst segir hafa fengið frábærar viðtökur.

Birgir á síður von á að endurtaka afmælis­tónleikana í sömu mynd. Þeir hafi staðið í meira en tvo og hálfan tíma og gestirnir verið margir. Sveitin hafi farið yfir allan laga­listann frá fyrri tíð og úr hafi orðið langt ferðalag þar sem hver smellurinn rak annan.

„Mér finnst bara mjög spes að gamall maður eins og ég hafi ekki þurft að fara á klósettið,“ segir hann og hlær.

„Þegar við gerðum höllina núna í vor þá var minni gesta­gangur, hugmyndin var að gera reif, dansiball allan tímann. Það heppnaðist mjög vel.“

Birgir segist hafa orðið hissa á því hve ungir áhorf­endur voru á afmælis­tónleikunum. Á seinni tónleikunum hafi áhorfenda­hópurinn verið nær eingöngu ungt fólk og það hafi verið gaman að sjá. Í Austurbæjar­bíói hafi þau síðan kynnt tónlistina sem þau eru að vinna að fyrir næstu plötu.

Á sviði
Á sviðiSveitin segir að á seinni tón­leik­unum í Laug­ar­dals­höll hafi mark­miðið verið að halda dansi­ball frá upp­hafi til enda.

„Sumt af þessu efni höfum við verið að spila í næstum tvö ár.“

Daníel Ágúst segir allt aðra tilfinningu fylgja því að spila fyrir fimm þúsund manns í höllinni en fimm hundruð í minna rými. Þar skapist meiri nánd og andrúms­loftið minni meira á umhverfið sem sveitin spratt úr.

„Þetta minnti mig soldið á Nasa giggin í gamla daga, soldið þannig stemning. Mér finnst bæði mjög gaman,“ segir Birgir. Hann segir sérstaka upplifun að standa á sviðinu í höllinni, með risastóra sviðsmynd og samstarfs­fólk sem kunni að nýta hana, og horfa yfir fimm þúsund manns á dans­gólfinu.

„Það er klikkað.“

Hljómfallið á sér hljómgrunn í Austur-Evrópu

GusGus fór í þriggja vikna tónleika­ferð í september. Birgir kallar hana ferð „um myrkustu frumskóga Austur-Evrópu“ og bætir við að þau hafi „sleikt nánast hraminn á rússneska birninum“. Hann nefnir Rúmeníu, Slóvakíu, Króatíu, Búlgaríu og Makedóníu þegar hann rifjar upp ferðina.

Spurður hvers vegna sveitin njóti slíkra vinsælda á svæðinu segir Daníel Ágúst að dyrnar kunni að standa opnar víðar þar en á stærri mörkuðum á borð við Þýskaland og sérstak­lega Bretland. Bretar séu stundum uppteknir af sjálfum sér.

„Fólk er bara móttækilegra fyrir bassa­trommunni, reyknum og svona þessu fljótandi tónlistar­flæði sem GusGus býr til í Austur-Evrópu.“

Birgir segir þó GusGus eiga góð tengsl við Bretland og hafa lengi átt þar góðan áheyrendahóp. Menningar­bakgrunnurinn í Austur-Evrópu sé öðruvísi og hann telur að það kunni að skýra viðtökurnar þar.

„Þegar við gerðum Arabian Horse þá sprakk þetta upp í Rússlandi. Það er eitthvað við hljóm­fallið í tónlistinni. Við erum greini­lega með einhvers konar hljómfall og hljóma­setningar sem ríma mjög vel við svona austur-evrópska þjóðlaga­tónlist.“

Hafa fengið boð um að spila í Rússlandi

Daníel Ágúst segir GusGus hafa fengið boð um að spila í Rússlandi eftir innrásina í Úkraínu. Landið hafi um tíma verið stór hluti af tónleika­ferðalögum sveitarinnar um heiminn.

„Það er bara ekki við hæfi að spila þar eins og staðan er núna. Við höldum bara niður í okkur andanum þangað til þessari vitleysu linnir.“

Birgir segist líta á Rússland sem evrópskt land þar sem ungt fólk vilji tilheyra Evrópu. Margir pólitískir þættir hafi leitt til þeirrar stöðu sem nú sé uppi.

„Ég sé þetta bara þannig að eina leiðin til þess að vinda ofan af þessari harðstjórn, spillingu og hernaðar­hyggju er að finna leið til friðar og leyfa fólki bara að sameinast í gegnum menningar­strauma og vera saman.“

Hann telur að til séu öfl sem vilji viðhalda átökum við Rússland svo hægt sé að halda hernaðar­vélinni gangandi. Sjálfur vilji hann geta séð fyrir sér Evrópu í friði við Rússland með nánari menningar- og viðskipta­tengslum. Slík tengsl geti með tíð og tíma haft áhrif á bæði stjórnmál og menningu.

Birgir vísar til þess hvernig Evrópu­lönd tengdust nánar í menningu og viðskiptum eftir síðari heims­styrjöld. Í hans huga sé það leið til friðar.

„Það sem mér finnst svo sorglegt er að það sé verið að taka fleiri og fleiri skref í að stilla þessu upp sem óyfirstíganlegum pólum.“

Rússneskir aðdáendur hafa sótt tónleika GusGus annars staðar í Evrópu. Birgir segir marga þeirra hafa verið á tónleikum sveitarinnar í Belgrad í Serbíu.

„Það kom meira að segja einn Rússi á hótelið okkar og bauð okkur út að borða,“ segir Margrét.

Þegar talið berst að því hvort Þýskaland sé heima­völlur GusGus utan Íslands spyr Birgir á móti hvort átt sé við að landið sé „Tene-ið“ þeirra. Daníel Ágúst kallar það annað heimili. Birgir tekur undir það og bætir Póllandi við.

„Við erum mjög mikið í Póllandi, spilum mikið á festi­völum þar. Við erum svo reglu­legir gestir í Prag, Búdapest og líka í Eystrasalts­löndunum. Jafnvel þegar það er lítið að gerast hjá bandinu þá er alltaf verið að panta okkur þangað.“

Platan sem ætlaði að koma núna

Margrét segir ýmsar ástæður fyrir því að undir­búningur nýju plötunnar hafi tekið langan tíma. Sveitin sé komin með nýjan umboðs­mann og hafi mikið rætt við hvaða útgáfu­fyrirtæki hún vilji vinna. Nú sé útgáfan farin að taka á sig mynd.

„Það þarf að vera eitthvað plan, ástæða fyrir hinu og þessu. Núna er það að teiknast allt upp. Það er ekki hægt að kasta þessu út í svart­nættið, það virkar ekki. Þetta er pínu eins og að spila skák, það þarf að vera taktík í gangi,“ segir hún.

„Öll hjólin þurfa að snúast samtímis,“ bætir Daníel Ágúst við.

Birgir segir vinnuna hafa gengið óvenju­lega hægt. Lög verði til með ólíkum hætti, sumir þættir vinnunnar gangi hratt og aðrir taki langan tíma. Vinnan gangi í bylgjum og velti líka á því hvernig skapi maður sé í gagnvart plötunni hverju sinni.

„Kannski var það bara dálítið þannig að ég var að reyna að klára plötuna á mánuði en þetta var kannski plata sem ætlaði aldrei að vera kláruð eftir mánuð. Hún ætlaði bara að koma núna. Mér finnst líka textarnir á þessari plötu eiga einhvern veginn meiri og meiri erindi eftir því sem tíminn líður.“

„Tíminn vinnur með okkur. Ég held líka að ef maður vill vanda sig og gera hlutina vel þá getur maður ekki þrýst um of á framgang mála,“ segir Daníel Ágúst.

Birgir segir plötuna koma út í apríl og telur tíma­setninguna hárrétta. Hún heitir Rewind and Replay eftir samnefndu lagi sem Daníel Ágúst syngur. Lagið sækir í reifið á tíunda áratugnum og stemninguna sem fylgdi því þegar klúbba­menningin var ný fyrir þeim.

„Þetta var svo mikil bylting að fara á klúbb og einhvern veginn gefa sig á vald á tónlistinni,“ segir Birgir.

„Maður vildi fara aftur og aftur, spóla til baka og spila það aftur,“ segir Daníel Ágúst.

Birgir segir titilinn falla að því sem þau séu að gera með plötunni í heild. Þau sæki í minningar úr reifinu og færi þær inn í sitt eigið popp­samhengi.

„Uppfylla GusGus gildin,“ segir Daníel Ágúst.

Í bílskúrnum
Í bíl­skúrnumBirgir Þór­ar­ins­son, Daníel Ágúst Har­alds­son og Margrét Rán Magn­ús­dóttir í bíl­skúr Birgis. Þau ræddu við Mannlíf um nýja plötu GusGus og tón­list­ar­lífið.

Tónleikarnir og tónlistin í kvikmyndum skila tekjum

Spurður um umræðuna um streymis­veitur segir Daníel Ágúst að þær þjóni fyrst og fremst fólki sem vill geta nálgast tónlist hvenær sem er og hvar sem er. Fólk sé enda með tónlist í eyrunum nánast allan sólar­hringinn.

„Við erum löngu, löngu hætt að líta á streymis­veitur sem einhverja tekjulind fyrir okkur. Við fáum okkar innkomu í gegnum tónleika­hald, selja músík í auglýsingar og kvik­myndir.“

Hann telur að eitthvað stórkostlegt þyrfti að gerast til að breyta þeirri jöfnu. Sveitin sé ekki með lausnina á því.

Austurbæjarbíó minnir á Nasa

Birgir segir sorglegt þegar lokað sé rýmum þar sem unnið er að menningu. Hann hefur áhyggjur af lokun Tónleika­þróunar­stöðvarinnar og nefnir Kex sem dæmi um mikil­vægan tónleika­stað sem hafi lokað.

„Ég var náttúru­lega mjög sár þegar að Nasa lokaði á sínum tíma því það var ekki neinn annar.“

Hann nefnir Gamla bíó, Lemmy og Austurbæjarbíó sem dæmi um góða staði sem séu starfandi. Hljómurinn í Austurbæjar­bíói hafi komið honum sérstak­lega ánægju­lega á óvart.

„Þar virðist vera kominn í raun og veru staðurinn sem hvarf með Nasa.“

Spurður hvort ríki og borg geti stutt betur við tónlistar- og viðburða­lífið vísar Daníel Ágúst í grein sem Birgir skrifaði um menningu og viðskipta­áætlanir. Daníel Ágúst segir góðan opinberan stuðning vera til staðar en reynslan sýni að erfitt sé að reiða sig eingöngu á hann. Austurbæjarbíó virðist ganga vel, þótt hann viti ekki hvort staðurinn njóti styrks frá borginni.

„Það eru lögmál, það eru lögmál frum­skógarins sem virðast gilda í þessum heimi.“

Hljóðheimur GusGus
Hljóð­heimur GusGusHljóð­færi og bún­aður í bíl­skúr Birgis Þór­ar­ins­sonar. Hann segir mik­il­vægt að hljóm­sveitir hafi aðgang að ódýru rými til að æfa og skapa tón­list.

Sveitir þurfa stað til að verða til

Birgir segir varasamt að beina stuðningi að því sem þegar sker sig úr. Grasrótin sé kjarninn í tónlistar­lífinu og þar sé fólk frjálst að prófa sig áfram. Þar eigi stuðningurinn heima.

„Það er svo mikilvægt að það séu til rými fyrir fólk að stofna hljóm­sveitir og æfa sig og gera einhverja svona hluti án þess að það sé dýrt og hafi aðstöðu til þess að vera í samneyti við aðra og vinna að tónlist og svo framvegis.“

„Ég sé þetta þannig að það græðir enginn á því að pimpa upp einhverja tónleika­staði ef það eru engar hljóm­sveitir af því þær geta hvergi orðið til.“

Að búa til tónlist og vera í hljómsveit geti verið leið til að fá útrás fyrir sköpunar­gleðina og hafa gaman af lífinu. Peningar þurfi ekki að ráða því hvort fólk leggur stund á tónlist.

Birgir segir óvenjumarga fást við tónlist hér á landi miðað við höfðatölu. Honum þyki gaman að tilheyra hópnum og hann lýsir honum sem stórum og skemmtilegum. Um leið og tekið sé eftir því sem maður geri sé maður orðinn vinur allra.

Úr slíku umhverfi spretti listamenn sem skari fram úr og fari sínar eigin leiðir. Hann nefnir Laufeyju, Of Monsters and Men, Björk og GusGus sem dæmi.

„Það þarf ekki að fara að styrkja þau beint heldur frekar jarð­veginn sem þau koma upp úr.“

Daníel Ágúst tekur undir það og segir stjórn­málamenn hafa hlutverki að gegna.

„Grasrótin verður að fá næringuna og svigrúmið til þess að vaxa og dafna til þess að það verði eitthvað, til þess að við höfum einhverja menningu í fram­tíðinni. Þar verður pólitíkin að koma sterkt inn. Ekki kæfa gras­rótina.“

Birgir tekur undir að þar megi verja fé. Jafnframt þurfi Reykjavík sem menningar­borg að huga að fjöl­breytni tónleika­staða og því hvort ólíkar hljóm­sveitir eigi sér stað þar sem þær geti komið fram.

Sendi eitt demó og bauð henni síðan í sveitina

„Þeir eru bara orðnir fjöl­skyldan mín,“ segir Margrét og hlær þegar hún er spurð hvernig samstarfið við Birgi og Daníel Ágúst hafi gengið.

Hún kynntist Birgi árið 2015 þegar hann vann með Vök að hljóð­blöndun og hljóð­heimi plötu. Margrét lýsir því sem yndislegu samstarfi. Leiðir þeirra lágu aftur saman þegar Birgir mætti á útgáfu­tónleika Vök árið 2019. Hann hafði sent henni skilaboð um að honum líkaði nýja platan, In the Dark. Eftir tónleikana stakk hún upp á að hann sendi henni demó og þau prófuðu að vinna saman.

„Hann sendi lagið Higher sem var fyrsti demóinn sem hann sendi á mig. Þetta samstarf okkar byrjaði svolítið bara að rúlla eftir það.“

Daníel Ágúst segir Margréti síðan hafa komið mjög sterka inn á plötuna Mobile Home.

„Já, hann dró mig inn í Mobile Home, eiginlega án þess að ég fattaði það einhvern veginn. Allt í einu var ég inni á sjö lögum eða eitthvað á plötunni. Svo buðu þeir mér í bandið,“ segir hún.

Birgir segir samstarfið hafa þróast eðlilega. Higher hafi verið lag sem honum þótti mjög flott og svolítið kreisí, en hentaði Daníel Ágústi illa. Til að skilja hversu miklu framlag Margrétar breytti þurfi að ímynda sér lagið eins og það hljómaði í demóinu, áður en söngurinn kom til.

„Þá var þetta eitthvað mjög furðulegt reggí teknó.“

Þegar Margrét sendi þeim sína útfærslu á söngnum hafi þeim þótt hún geggjuð. Sjálf hafi hún spurt hvort þetta væri eitthvað.

„Og við sögðum bara: Já, þetta er hittarinn!“

Hljóðfærin
Hljóð­færinHljóð­gervlar og annar tón­list­ar­bún­aður í bíl­skúr Birgis Þór­ar­ins­sonar. GusGus hefur unnið að nýrri plötu sem er vænt­an­leg í apríl 2027.

Á enn eftir að komast til Mexíkó

Spurður hvert hann vilji helst fara með GusGus nefnir Birgir Kína. Margrét nefnir Japan, Kína og Banda­ríkin og hlær þegar hún rifjar upp að hún eigi enn eftir að spila með sveitinni í Mexíkó.

„Ég náttúru­lega byrjaði í þessu bandi til þess að komast svona semí til Mexíkó, hef ekki fengið að fara þangað.“

Daníel Ágúst segir leiðina til Mexíkó og Suður-Ameríku hafa opnast þegar GusGus fékk mexíkóskan umboðs­mann sem kom tónleikum á koppinn. Sveitin hafi þó þegar farið til Mexíkó á síðustu öld.

„Þar var tekið á móti okkur með kynjum og kostum og var haldinn meira að segja blaðamanna­fundur og við spiluðum á Hard Rock kaffi,“ segir hann og hlær. „Það var bara skemmtilegt ævintýri að fara þangað.“

Daníel Ágúst segir sveitina einnig hafa tekið góða skorpu í Banda­ríkjunum á síðustu öld þegar hún var á samningi hjá Warner. Birgir segir hana síðar hafa spilað í borgum á borð við New York, Los Angeles, San Francisco og Seattle, án þess að fara í tónleika­ferð um landið.

„En eins og ástandið er þarna núna, þá hef ég engan sérstakan áhuga á að fara þangað. Allavega ekki í bili. Atvinnu­leyfið þarna er sturlað dýrt.“

Birgir líkir því hve erfitt honum finnst orðið að komast til Banda­ríkjanna til að vinna við aðstæður í Rússlandi á níunda áratugnum. Á sama tíma hafi Rússland að hans mati um skeið verið að færast í átt að því hvernig Banda­ríkin voru áður hvað þetta varðar.

Daníel Ágúst nefnir Ástralíu sem land sem sveitin eigi alveg eftir.

„David var náttúru­lega risa­hittari í Ástralíu og þeir eru ennþá að bíða eftir að við komum að spila David,“ segir Birgir og hlær.

Eins og að panta pítsu

Margrét segir erfitt að átta sig á því hvernig eigi að umgangast gervi­greind í tónlist. Tæknin veki spurningar sem þau hafi ekki þurft að glíma við áður.

„Þú veist, maður er bara eitthvað, á ég að nota þetta eða ekki? Hvar eru mörkin?“

Hún var að vinna að lagi með Óla Alexander, félaga sínum í Vök, þegar hann prófaði að setja lag sem þegar var búið að semja inn í gervi­greindar­forrit. Forritið hafi tekið lagið og gert eitthvað „geðveikt“ við það.

„Við vorum bara eitthvað, ‘Shit, þetta er svo spooky’. Við notuðum það samt ekki.“

Birgir líkir því að eigna sér tónlist sem gervi­greind hefur búið til við að panta pítsu og segja svo við aðra: „Sjáið pítsuna sem ég gerði.“

Hann á þó von á því að tæknin verði notuð og geri fleirum kleift að fást við ýmis verkefni. Hann nefnir forritun sem dæmi um það hvernig tæknin hafi þegar auðveldað fólki að búa til alls konar hluti.

Í tónlist sér Birgir fyrir sér að fram­leiðslan aukist gríðar­lega. Hann tekur hundrað þúsund lög á dag á Spotify sem dæmi um það magn sem hlustendur geti þurft að greiða úr. Honum þyki mest truflandi hvað mikið af því geti runnið saman í hávaðasuð.

„Það er fullt af fólki sem er ekki með neinar sérstakar sérþarfir í músík og setur bara einhvern playlista í gang. Þessu fólki gæti alveg verið slétt sama hvort þetta séu einhverjir raun­verulegir artistar eða gervi­greind. En fólk vill samt almennt tengjast raun­verulegu fólki sem er að gera raun­verulega hluti.“

Margrét telur að mikil viðbrögð við tækninni geti ýtt fólki í hina áttina. Hún segist þegar sjá merki um það í því hvernig ungt fólk hlustar á tónlist.

„Ég er líka að taka eftir ungu fólki, það er farið að kaupa sér CD, fá sér ghettoblaster. Litlu krakkarnir nenna þessu ekki lengur.“

Birgir telur að sumir vilji einfald­lega afmarka hvað þeir hlusta á. Þeir kaupi sér einn geisla­disk og hlusti á hann. Það minni á hvernig fólk keypti tónlist áður fyrr. Plötur hafi kostað sitt og því hafi það verið ákveðið skref að velja sér eina.

„Fólk þarf að komast í eitthvert skiljanlegra rými.“

Daníel Ágúst lítur á gervi­greindina sem hluta af sömu þróun og hefur gert snjall­tækin að daglegum fylgi­fiski.

„Gervi­greindar­heimurinn er bara hluti af snjall­heiminum og við sjáum hvað snjall­heimurinn hefur gert við okkur og fyrir okkur. Hann gerir lífið auðveldara á einhvern hátt en hann getur líka alveg bara gleypt okkur í heilu lagi.“

Merki sveitarinnar
Merki sveit­ar­innarMerki GusGus og vegg­spjald í bíl­skúr Birgis
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Húsið var reist árið 1984

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir