Eldur kviknaði á bensínstöð í Vestur-Hollywood í Kaliforníu á föstudag eftir að bifreið virðist hafa verið ekið á eldsneytisdælu. Nokkrar bifreiðar stóðu í ljósum logum við dælurnar og lagði dökkan reyk frá stöðinni.
Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang eftir að tilkynning barst um áreksturinn um klukkan 13.23 að staðartíma, samkvæmt NBC.
Á myndskeiði sem LA Globe komst yfir sjást miklir eldar við dælurnar og lögreglumenn á vettvangi. Götum í nágrenni bensínstöðvarinnar var lokað tímabundið vegna eldsins.
Orsök árekstursins lá ekki fyrir þegar greint var frá málinu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir