Christina Blake lést á þriðjudag eftir að hafa gengið á flugvélarskrúfu sem var í gangi á Big Lake flugvellinum í Alaska. Flugmaður vélarinnar slasaðist ekki.
Samkvæmt lögreglunni í Alaska ók Blake bifreið sinni eftir akbraut flugvallarins síðdegis þegar lítil flugvél lenti. Flugmaðurinn stöðvaði vélina til að gefa henni svigrúm til að færa bifreiðina. Blake steig út úr bílnum, gekk að flugvélinni og á skrúfuna sem snerist enn.
Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningafólk komu á vettvang skömmu fyrir klukkan fimm. Blake var úrskurðuð látin á staðnum.
Lögregla segir að engin tengsl Blake við flugmanninn, flugvélina eða flugvöllinn hafi komið í ljós. Rannsakendur telja að hún hafi gengið á skrúfuna fyrir slysni.
Lík Blake var flutt til réttarlæknis ríkisins til krufningar. Rannsókn málsins stendur enn yfir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir