Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkargjörðardaginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.

Faðir tveggja sona
Faðir tveggja sona Jorge Luis Arcia Marin, til vinstri, var skot­inn til bana í Fort Lauder­dale. Jesus Enriques Villatoro, til hægri, var hand­tek­inn í tengslum við málið.

Jorge Luis Arcia Marin, 56 ára tveggja barna faðir, var skotinn til bana í Fort Lauderdale í Flórída að morgni þakkar­gjörðar­dags. Lögregla handtók hinn 18 ára Jesus Enriques Villatoro í tengslum við málið. Marin starfaði sem ökumaður hjá Uber.

Lögregla var kölluð á vettvang eftir að neyðar­línu bárust tilkynningar um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi. Þegar lögreglu­menn komu á staðinn fundu þeir Marin liggjandi á grúfu í bifreið sinni. Villatoro stóð við opnar dyr bifreiðarinnar að sögn People.

Villatoro er sagður hafa hlaupið af vettvangi þegar lögregla hafði afskipti af honum. Hann var hand­tekinn skammt frá kirkju. Marin var úrskurðaður látinn á vettvangi. Samkvæmt embætti réttar­læknis í Broward-sýslu lést hann af skotsárum á brjósti og höfði.

Kvaðst hafa verið neitað um far

CBS 12 greinir frá því að Villatoro hafi viðurkennt í samtali við lögreglu að hafa skotið Marin. Hann sagði skot­árásina hafa orðið eftir að Marin neitaði að veita honum far. Villatoro hélt því jafnframt fram að Marin hefði verið vopnaður og miðað byssu á hann.

Frænka Marins sagði í samtali við WPLG Local 10 að frændi hennar hefði ekið fyrir Uber til að geta sent fjöl­skyldu sinni á Kúbu peninga. Hann lætur eftir sig tvo syni, tólf og tuttugu ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum