Lögregla í Indónesíu hefur handtekið fjórar unglingsstúlkur vegna gruns um aðild að dauða sautján ára skólastúlku í borginni Malang á Austur Jövu. Málið, sem tengist meintu einelti, hefur vakið mikla reiði í landinu. Stúlkurnar eru á aldrinum sextán til sautján ára.
Danang Setiyo Pambudi, lögreglustjóri í Malang, sagði tvær stúlknanna hafa sótt hina látnu á heimili foreldra hennar á miðvikudagskvöld. Þær hefðu farið með hana á mótorhjóli á stað í nágrenninu þar sem hinar tvær biðu. Að sögn lögreglustjórans drógu þær stúlkuna af hjólinu og slógu hana og spörkuðu í hana þar til hún missti meðvitund.
Bráðabirgðaniðurstöður réttarlæknisrannsóknar benda að sögn lögreglustjórans til þess að stúlkan hafi látist af völdum köfnunar. Stúlkurnar eru taldar hafa farið með hana á sjúkrahús í nágrenninu eftir að tilraunir þeirra til að endurlífga hana báru ekki árangur.
Lögregla kannar hvort myndbönd séu til
Jules Abraham Abast, talsmaður lögreglunnar, sagði á sunnudag að stúlkurnar hefðu verið í haldi frá föstudegi eftir að lögregla tók skýrslur af sjónarvottum. Ein þeirra er sögð hafa reynt að flýja áður en hún var handtekin. Abast sagði að farið væri með mál þeirra samkvæmt reglum um börn sem grunuð eru um lögbrot. Þær fengju að svo stöddu ekki að þreyta skólapróf þar sem yfirheyrslur stæðu enn yfir.
Seint á föstudagskvöld réðust reiðir íbúar inn á íbúðasvæði þar sem ein stúlknanna bjó. Þar kom til átaka við lögreglu og kveikt var í tveimur lögreglubifreiðum. Á laugardagsmorgun var talið að lögregla hefði náð tökum á ástandinu.
Dekananto Eko Purwono, lögreglustjóri héraðsins, sagði lögreglu kanna hvort til væru tvö myndbönd sem sögð eru sýna stúlkurnar ráðast á hina sautján ára stúlku við fyrri tækifæri.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir