Mál karlmanns sem grunaður var um að hafa brotið kynferðislega gegn barni á leikskólanum Garðaseli á Akranesi var fellt niður í lok október. Ákvörðunin hefur verið kærð til ríkissaksóknara og er niðurstöðu hans beðið.
Þetta kemur fram í svari Karls Inga Vilbertssonar varahéraðssaksóknara við fyrirspurn Vísis. Málið barst ákærendum 14. september og kom það í hlut Karls Inga að ákveða hvort gefa skyldi út ákæru.
Maðurinn var handtekinn 17. mars og sleppt úr haldi skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi á meðan rannsókn málsins stóð yfir. Samkvæmt Vísi hafði maðurinn starfað stutt á leikskólanum þegar málið kom upp.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir