Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðarlagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Bílar í umferð
Bílar í umferð Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: BHJ

Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi sex menn í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot í jafnmörgum málum 25. nóvember. Refsingarnar voru frá 30 dögum upp í fimm mánuði. Fjórir mannanna voru sviptir ökurétti ævilangt frá birtingu dómanna og hjá þeim fimmta var fyrri ævilöng svipting áréttuð.

Tveir hlutu fimm mánaða fangelsisdóm. Annar þeirra ók sviptur ökurétti í tólf skipti frá janúar til júlí á þessu ári. Í sjö tilvikum var hann jafnframt undir áhrifum fíkniefna og í tveimur þeirra ók hann á negldum hjól­börðum þegar notkun þeirra var óheimil. Honum var gert að greiða 1.073.235 krónur í sakar­kostnað og hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Hinn var stöðvaður á Vestur­landsvegi í Mosfellsbæ í apríl. Hann ók sviptur ökurétti og mældust áfengi, kókaín og tetrahýdrókannabínól í blóði hans. Hann játaði brotin. Dómurinn áréttaði ævilanga sviptingu ökuréttar sem honum hafði verið gerð árið 2020 og dæmdi hann til að greiða 241.677 krónur í sakar­kostnað.

Fjögurra mánaða fangelsi fyrir akstur í sviptingu

Þriðji maðurinn var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti við Tanga­bryggju í Reykjavík í janúar. Hann játaði brotið. Við ákvörðun refsingar lagði dómurinn til grund­vallar að þetta væri í sjötta sinn sem hann æki sviptur ökurétti innan þess tíma sem fyrri brot höfðu áhrif á refsinguna. Honum var gert að greiða 176.700 krónur í málsvarnar­þóknun.

Í öðru máli hlaut maður 75 daga fangelsisdóm fyrir að aka fjórum sinnum í Reykjavík undir áhrifum fíkniefna og slævandi lyfja. Aksturinn átti sér stað á tíma­bilinu frá janúar til ágúst. Maðurinn hafði áður tvívegis hlotið refsingu fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða 1.383.860 krónur í sakar­kostnað.

Ók aftan á bíl á Reykjanesbraut

Maður sem ók tvisvar sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, fyrst á Suður­landsvegi og síðar á Kárs­nesbraut, var dæmdur í 45 daga fangelsi. Við ákvörðun refsingar tók dómurinn mið af skýlausri játningu hans og gögnum um fyrir­hugaða meðferð. Hann var sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða samtals 519.648 krónur í sakar­kostnað og málsvarnar­þóknun.

Sá sjötti hlaut 30 daga fangelsisdóm fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis á Reykja­nesbraut í desember í fyrra. Hann ók aftan á aðra bifreið og hlýddi ekki fyrir­mælum lögreglu við handtöku um að setja hendur fyrir aftan bak. Vínanda­magn í blóði hans mældist 2,36 prómill. Hann var sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða 156.317 krónur í sakar­kostnað. Dómurinn lagði til grund­vallar að þetta væri þriðja ölvunar­aksturs­brot hans innan ítrekunar­tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá