Kvikmyndagerðarkonan Bergþóra Björnsdóttir hefur sett íbúð sína við Lokastíg 16 í Þingholtunum á sölu eftir að hafa búið þar í tólf ár. Ásett verð er 59,9 milljónir króna. Bergþóra hefur meðal annars unnið að Ófærð, Venjulegu fólki og Lof mér að falla.
Í færslu á Facebook segist Bergþóra hafa ætlað sér að búa við Lokastíg fram á efri ár. Fjölskyldan hafi hins vegar stækkað og nú sé kominn tími á meira rými.
„Hér ætlaði ég að verða gömul. En svo lenti ég í því að eignast mann og stjúpbörn og ef það var ekki nóg: líka hund!“ skrifar Bergþóra.
Hún segir fjölskyldunni líða vel í íbúðinni þótt þröngt sé um hana. Börnin séu nú orðin táningar og fjölskyldan hafi fundið aðra eign sem hún geti hugsað sér að gera að heimili sínu. Bergþóra segir þau stefna að því að flytja skammt, gangi áformin eftir.
Íbúðin er á annarri hæð í steinhúsi og er með tveimur svefnherbergjum. Samkvæmt sölulýsingu hefur hún verið töluvert endurnýjuð og er þar góð lofthæð. Íbúðin er skráð 49,7 fermetrar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Henni fylgja tvær óskráðar geymslur í kjallara sem eru samtals um sjö fermetrar. Heildarflatarmálið er því tæpir 57 fermetrar að geymslunum meðtöldum.
Í sameign er þvottahús og þurrkherbergi. Á baklóð er sameiginleg hellulögð verönd og geymsluskúrar sem nýtast undir reiðhjól.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir