Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrands­dóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.

Snjóþungur dagur
Snjó­þungur dagur Krist­jana Guð­brands­dóttir segir úti­veru bæta skapið, jafn­vel þótt veðrið sé leið­in­legt. Mynd: Víkingur

Heit egg í úlpu­vösunum, ullarföt í lögum og sundferð í myrkri eru meðal ráða sem Kristjana Guðbrands­dóttir blaða­maður deilir með lesendum breska miðilsins The Paper. Kristjana býr í Reykjavík og skrifar um hvernig hún heldur á sér hita og nýtur vetrarins án þess að treysta alfarið á húshitun.

Hún kynnir jafnframt íslenska orðið „kósíkvöld“ fyrir breskum lesendum og segir það hljóma mun meira aðlaðandi en að segjast einfald­lega ekkert hafa á döfinni.

Settu harðsoðin egg í úlpuvasana

Eigin­maður Kristjönu hjólar til vinnu í Reykjavík í slyddu, hagli og hvassviðri. Á sérstak­lega köldum morgnum sýður hann tvö egg og stingur einu heitu eggi í hvorn úlpuvasa. Þannig getur hann hlýjað sér um hendurnar áður en hann leggur af stað og borðað eggin í morgunmat þegar hann kemur til vinnu.

Kristjana segist aðeins hafa prófað þetta einu sinni. Eigin­maður hennar hafði gengið út frá því að það segði sig sjálft að eggin ættu að vera harðsoðin.

Klæddu þig í ull og hafðu fötin í lögum

Kristjana mælir með ullar­fötum og segir alpakka­peysuna sína enn líta út eins og nýja eftir tíu vetur. Hún nefnir einnig merinóull og kasmír fyrir þau sem finnst ullin stinga.

Hún segir vindinn og rakann oft gera kuldann verri. Hlýr nærbolur, ullar­peysa, góð úlpa, hlýir sokkar og trefill geti því skipt miklu á köldum og blautum vetrar­dögum.

Gerðu meira úr hafragrautnum

Heit súpa, kássa eða hafra­grautur er meðal þess sem Kristjana sækir í þegar kólnar. Rétt áður en hafra­grauturinn er tilbúinn hrærir hún eggi og örlítilli vanillu saman við og heldur áfram að hræra þar til grauturinn þykknar og minnir á vanillu­krem.

Eigin­maður hennar kýs sinn graut með mjólk og hunangi. Kristjana bendir á að hann sé þó sjálfur vanur að bera morgun­matinn í úlpu­vösunum. Hún tekur einnig lýsi, venju sem hún hefur haldið í frá uppvexti sínum á Norður­landi.

Farðu út þótt veðrið sé vont

Kristjana segist reyna að fara út þótt veðrið sé leiðinlegt, enda bæti útiveran skapið. Hún gengur á fjöll og tók upp göngu­skíði í fyrra. Síðan þá hefur það sem hún áður taldi ömurlegt síðdegi getað orðið að góðum degi á skíðum.

Ein af vetraránægjum hennar er að synda utandyra í myrkri. Að sundi loknu velur hún gufubaðið þegar hún vill næði og heita pottinn þegar hana langar í félags­skap.

Geymdu góða bók þar til snjórinn fellur

Bókin sem Kristjana leitar aftur í á veturna er Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson. Þar segir frá manni sem heldur til fjalla með hundi sínum og hrúti í leit að kindum sem urðu eftir í snjónum. Sagan er byggð á ferð sem farin var veturinn 1925.

Kristjana segir söguna góða kvöld­lesningu þegar henni finnst skorta á góðvild og samkennd í kringum sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu