Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku fyrir þjófnaðarbrot sem framin voru í Reykjavík og Kópavogi. Annar mannanna var jafnframt sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Mennirnir voru meðal annars sakfelldir fyrir að hafa stolið vörum úr verslunum Bónus, Krónunnar og Kids Coolshop. Verðmæti þýfisins var mismikið en í umfangsmesta einstaka þjófnaðinum var um að ræða vöru að verðmæti tæplega 170 þúsund krónur úr Kids Coolshop á Smáratorgi í Kópavogi.
Annar mannanna var einnig sakfelldur fyrir þjófnað úr Bónus í Holtagörðum og ELKO í Skeifunni, auk þjófnaðar úr Krónunni í Jafnaseli. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana og fíkniefna. Oxýkódon mældist í blóði hans þegar lögregla stöðvaði akstur hans í Reykjavík.
Báðir mennirnir játuðu brot sín eftir að ákæruvaldið gerði breytingar á ákærunni. Dómurinn taldi sannað með játningum þeirra og rannsóknargögnum að þeir hefðu gerst sekir um háttsemina.
Sá sem hlaut þyngri dóminn átti nokkurn sakaferil að baki. Dómurinn taldi brotin sýna einbeittan brotavilja og skeytingarleysi gagnvart eigum annarra. Hann var dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti í þrjú ár.
Hinn maðurinn var dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir þrjú þjófnaðarbrot. Refsing hans var skilorðsbundin til tveggja ára. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til skýlausrar játningar hans og þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað.

































Athugasemdir