Nokkrir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í dag og í nótt. Meðal verkefna lögreglu voru líkamsárás, hótanir, eignaspjöll og þjófnaðir auk þess sem nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Í Reykjavík var maður í annarlegu ástandi handtekinn vegna eignaspjalla. Hann var vistaður í fangageymslu sökum ástands síns.
Þá barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Einn maður var handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu.
Í Breiðholti var maður í annarlegu ástandi handtekinn vegna hótana og vörslu fíkniefna. Var hann einnig vistaður í fangageymslu.
Lögregla hafði jafnframt afskipti af nokkrum ökumönnum. Ökumaður var stöðvaður í Reykjavík vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar í Kópavogi vegna gruns um ölvunarakstur. Báðir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Tveir ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, annars vegar í Garðabæ og hins vegar í Grafarvogi. Þeir voru sömuleiðis látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Þá var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Árbænum og var málið afgreitt á vettvangi.
Í Grafarvogi var maður í annarlegu ástandi handtekinn vegna þjófnaðar úr verslun og brots á lögreglusamþykkt. Hann var vistaður í fangageymslu.































Athugasemdir