Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, veltir fyrir sér hvers vegna mun minni umræða virðist nú vera um brottvísanir útlendinga en þegar VG sat í ríkisstjórn. Hún segir mannréttindi ekki mega ráðast af því hvaða stjórnmálaflokkar fari með völd hverju sinni.
Jódís fjallar um málið í færslu á Facebook þar sem hún rifjar upp harða gagnrýni sem hún og VG sættu vegna útlendingamála á sínum tíma.
„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir,“ skrifar Jódís. Hún tekur þó fram að hluti gagnrýninnar hafi verið réttmætur og nauðsynlegur.
Jódís segir að á árunum 2021 og 2022 hafi lögregla fylgt 128 einstaklingum úr landi sem fengið höfðu endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Árið 2022 hafi 31 einstaklingi verið frávísað til Grikklands. Hún hafi sjálf farið þangað til að kynna sér aðstæður í móttökubúðum og ræða við stofnanir og mannréttindasamtök.
Hún bendir á að brottflutningar hafi haldið áfram eftir að VG fór úr ríkisstjórn. Samkvæmt tölum sem Jódís vísar til lauk heimferða og fylgdadeild ríkislögreglustjóra 388 málum árið 2025 og 271 máli fyrstu níu mánuði ársins 2026. Hún tekur fram að tölfræðilegu flokkarnir séu ekki að öllu leyti sambærilegir við eldri tölur.
Jódís segir hins vegar mikinn mun vera á opinberri umræðu.
„Hvar eru mótmælin? Hvar er fólkið sem mætir út á völl? Hvar eru Facebook-færslurnar? Hvar er siðferðilega neyðin sem einkenndi umræðuna fyrir örfáum árum?“ spyr hún.
Jódís segist ekki með þessu vera að draga úr ábyrgð VG og viðurkennir að flokkurinn hefði átt að gera betur.
„Er barn sem er brottvísað minna virði árið 2026 en barn sem brottvísað var árið 2022? Auðvitað ekki!“ skrifar Jódís og segir þögnina í kringum málið nú vera óhugnanlega.
Hún segir þá sem brottvísanirnar snerta eiga skilið sömu athygli, samstöðu og kröfu um mannúð óháð því hverjir sitji í ríkisstjórn.






























Athugasemdir