Kínverskur tæknáhugamaður hefur vakið mikla athygli eftir að hafa smíðað fljúgandi svifbretti og flogið á því yfir fjöll, götur og Jangtsefljót í Kína.
Maðurinn heitir Song Xingyu, er 26 ára og kemur frá Enshi í Hubei héraði. Hann er þekktur undir nafninu Amazing Ayu á samfélagsmiðlum. Samkvæmt South China Morning Post tók það Song um tvo mánuði að þróa svifbrettið.
Song birti myndband af tilraunafluginu 15. október. Tækið er rafknúið og búið gervigreindarkerfi sem fylgist með virkni þess. Það er sagt hannað til að geta borið fjóra fullorðna einstaklinga. Song gekkst sjálfur undir umfangsmikla jafnvægisþjálfun áður en hann steig á brettið.
Á þjóðhátíðardögum Kína í október framkvæmdi hann umfangsmikið tilraunaflug í Enshi. Þar flaug hann meðal annars yfir Jangtsefljót, fjalllendi og götur áður en hann lenti heilu og höldnu í gljúfri.
Ferill Song sem uppfinningamanns hefur þó ekki verið áfallalaus. Hann hætti í skóla 14 ára og hóf síðar að smíða flugvélar úr ýmsum efniviði. Árið 2022 tók hann lán til að breyta yfirgefnum skúr í rannsóknarstofu.
Hann hefur einnig lent í lífshættulegum aðstæðum við tilraunir sínar. Í einni þeirra stökk hann úr þyrlu í um fimm þúsund metra hæð með heimasmíðað flugtæki. Aðalfallhlíf hans opnaðist ekki og þurfti hann að treysta á varafallhlífina.
Song segist ætla að halda áfram að ögra mörkum eðlisfræðinnar með uppfinningum sínum.































Athugasemdir