Karlmaður á sjötugsaldri á Englandi byrlaði eiginkonu sinni og nauðgaði henni ítrekað á um tveggja áratuga tímabili. Hann er jafnframt sakaður um að hafa boðið öðrum karlmönnum að taka þátt í kynferðislegu ofbeldi gegn konunni á meðan hún var meðvitundarlaus.
Réttarhöld yfir níu mönnum, sem sakaðir eru um ýmis kynferðisbrot gegn konunni, hófust fyrir dómi í Manchester. Eiginmaður konunnar hefur þegar játað fjölda brota en ekki er heimilt að nafngreina hann þar sem það gæti leitt til þess að brotaþolinn yrði auðkenndur.
Louise Oakley saksóknari sagði fyrir dómi að lögregla hefði fundið meira en eina milljón ljósmynda og myndskeiða í síma og tölvu eiginmannsins. Gögnin sýndu bæði ofbeldi hans sjálfs gegn eiginkonunni og meint brot annarra manna gegn henni.
Að sögn saksóknara tók maðurinn upp ofbeldið og deildi myndefni á internetinu og í gegnum samfélagsmiðla með öðrum mönnum sem deildu kynferðislegum áhuga hans.

Sumir hinna ákærðu eru sagðir hafa átt í samskiptum við eiginmanninn um hvernig hægt væri að byrla konunni þannig að hægt væri að misnota hana kynferðislega.
Frá árinu 2023 er eiginmaðurinn sagður hafa gengið enn lengra og boðið mönnum heim til þeirra hjóna. Þar hafi hann tekið upp myndskeið af sjálfum sér og öðrum mönnum nauðga konunni á meðan hún var meðvitundarlaus.
Oakley lýsti síma mannsins sem eins konar játningarklefa. Þar hefðu fundist gögn um kynferðisofbeldi og fantasíur sem næðu allt aftur til ársins 2004. Saksóknari sagði manninn hafa lifað tvöföldu lífi sem hefði verið falið á bak við virðingarvert yfirbragð.
Játningar og réttarhöld
Eiginmaðurinn játaði í september um 60 kynferðisbrot gegn eiginkonu sinni, þar á meðal að hafa gefið henni efni í þeim tilgangi að svipta hana getu til að veita mótspyrnu.
Alls hafa hann og 13 aðrir karlar verið sakaðir um að hafa lagt á ráðin um að misnota konuna. Fjórir þeirra hafa þegar játað ýmis brot.
Níu menn, á aldrinum 28 til 70 ára, neita hins vegar sök. Þeir eru meðal annars ákærðir fyrir nauðgun, kynferðisbrot og samsæri um að byrla konunni. Meðal hinna ákærðu eru leigubílstjóri, starfsmaður ráðningarþjónustu, starfsmaður byggingarvöruverslunar og háttsettur heilbrigðisstarfsmaður.





































Athugasemdir