Matthías Daði Guðbjartsson hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hafa skallað lögreglumann í höfuðið í Reykjanesbæ. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag, 2. nóvember.
Atvikið átti sér stað aðfaranótt 16. ágúst 2025 fyrir utan skemmtistað í Reykjanesbæ. Lögregla hafði afskipti af Matthíasi eftir að dyraverðir óskuðu eftir aðstoð vegna framkomu hans. Samkvæmt gögnum málsins var hann mjög æstur og ósamvinnuþýður og fann lögregla vasahníf í buxnavasa hans. Hann var í kjölfarið handjárnaður og færður inn í lögreglubifreið.
Þegar lögreglumaður hugðist setja Matthías í öryggisbelti í aftursæti bifreiðarinnar skallaði Matthías hann í höfuðið.
Matthías neitaði sök og sagðist fyrir dómi ekki hafa veitt lögreglu mótspyrnu. Hann þrætti jafnframt fyrir að hafa skallað lögreglumanninn. Við aðalmeðferð málsins voru meðal annars sýndar upptökur úr búkmyndavélum lögreglu.
Dómurinn taldi hins vegar sannað hafið yfir skynsamlegan vafa að Matthías hefði skallað lögreglumanninn. Á upptökunum sást hann, að mati dómsins, sveigja höfuðið aftur og reiða það síðan fram til höggs. Framburður þriggja lögreglumanna studdi einnig þá niðurstöðu.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að Matthías hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Hann var dæmdur í 45 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.





































Athugasemdir