Fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot eftir að lögregla fann 267 kannabisplöntur í bifreið hans á Vesturlandsvegi í sumar. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í desember.
Samkvæmt ákæru lögreglustjórans á Vesturlandi er manninum gefið að sök að hafa þriðjudaginn 21. júlí síðastliðinn haft kannabisplönturnar í vörslu sinni og flutt þær í bifreið.
Akstur bifreiðarinnar var stöðvaður á Vesturlandsvegi í Borgarbyggð. Við leit lögreglu fundust plönturnar í tveimur gróðurkössum í farangursrými bifreiðarinnar og voru þær haldlagðar.
Í ákærunni kemur fram að um hafi verið að ræða samtals 267 kannabisplöntur sem voru á bilinu átta til tólf sentímetrar að hæð. Samanlögð þyngd þeirra var 240 grömm.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er jafnframt gerð krafa um að kannabisplönturnar verði gerðar upptækar.
Ákæran var gefin út 25. október síðastliðinn.































Athugasemdir