Hörður Aron Guðmundsson hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hafa sparkað í lögreglumann og haft ítrekaðar hótanir í frammi gegn tveimur lögreglumönnum. Dómur féll í Héraðsdómi Suðurlands 29. október.
Atvikið átti sér stað 9. nóvember 2025 á Hótel Stracta á Hellu. Hörður Aron sparkaði í lögreglumann við handtöku á setustofu hótelsins og hótaði tveimur lögreglumönnum.
Samkvæmt ákæru sagði hann: „ég fokking tek þig og fokking rústa þér litla rottan þín“, „ég fokking stúta þér þarna litla tussan þín“ og „ég skal fokking rústa ykkur báðum“.
Hótanirnar héldu áfram eftir handtökuna. Í lögreglubifreið á leið á lögreglustöðina á Selfossi sagði hann við lögreglumann: „á ég að fokking buffa þig“.
Fyrir utan lögreglustöðina sagði hann: „komdu út haltu kjafti litla hóran þín eða ég fokking snappa þig“.
Á lögreglustöðinni hótaði Hörður Aron öðrum lögreglumanninum líkamsmeiðingum og kynferðislegu ofbeldi.
„bíddu, bíddu þangað til ég fæ tækifæri litla hóran þín, ég tek það og ét þig, fokking ét þig litla hóran þín,“ sagði hann samkvæmt ákærunni.
Hann sagði jafnframt: „Hættu að taka í mig eins og þú sért eitthvað þarna litla hóran þín á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín, ha viltu það, viltu það á ég að ríða þér í rassgatið litla hóran þín“ og „komdu litla tussan þín ég skal fokking skalla þig í smettið“.
Hörður Aron játaði brotin skýlaust fyrir dómi og óskaði ekki eftir verjanda. Hann hafði ekki áður sætt refsingu.
Refsingin var ákveðin 60 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað. Hún fellur niður að tveimur árum liðnum haldi Hörður Aron almennt skilorð. Enginn sakarkostnaður féll til.






























Athugasemdir