Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tilkynningar um skemmdarverk á nærri þrjátíu bifreiðum á Seltjarnarnesi. Skemmdarverkin voru unnin í nótt.
Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd þegar skemmdarvargur, eða skemmdarvargar, létu til skarar skríða. Rúður voru brotnar í bifreiðunum.
Lögreglan óskar eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir á svæðinu seint í gærkvöld eða í nótt.
Íbúar á svæðinu og aðrir sem áttu þar leið um á þeim tíma eru jafnframt hvattir til að kanna hvort þeir hafi undir höndum myndefni sem gæti nýst við rannsókn málsins.
Lögreglan bendir sérstaklega á upptökur úr hefðbundnum eftirlitsmyndavélum, en einnig myndavélum í bifreiðum. Slíkur búnaður sé nú að finna í mörgum bílum og upptökur úr þeim gætu varpað ljósi á hver eða hverjir voru að verki.
Þau sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðin um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.































Athugasemdir