Ráðgátan um svokallaðan raðkúkara í Kópavogi heldur áfram en grímuklæddur maður skeit á bíl Ragnars Egilssonar, íbúa við Álfhólsveg, aðfaranótt hrekkjavöku.
Atvikið náðist á öryggismyndavélar Ragnars. Um klukkan 5.30 aðfaranótt 31. október sést grímuklæddur maður ganga inn á lóðina, líta í kringum sig og girða síðan niður um sig. Virðist hann því næst hafa hægðir við framhlið bílsins eða gera tilraun til þess.
DV hefur ítrekað fjallað um raðkúkarann, sem hefur heimsótt Ragnar nokkrum sinnum undanfarin ár. Enn liggur ekki fyrir hver maðurinn er eða hvers vegna hann hefur ítrekað tekið bíl Ragnars fyrir.
Fyrsta þekkta heimsókn raðkúkarans var í febrúar 2023. Þá var hann klæddur þannig að Ragnar líkti honum við Djáknann á Myrká. Í desember sama ár sneri maðurinn aftur, þá dulbúinn sem jólasveinn, og hafði aftur hægðir á bílnum. Ragnar taldi sig þekkja manninn af skónum.
Raðkúkarinn lét ekki þar við sitja. Árið 2024 mætti hann í tvígang um miðja nótt. Í október það ár bar hann meðal annars hauskúpugrímu í anda hrekkjavökunnar.
Nú, tveimur árum síðar, virðist raðkúkarinn því hafa snúið aftur á sömu slóðir. Þrátt fyrir ítarlegt öryggismyndavélakerfi og ítrekaða umfjöllun DV hefur ekki tekist að upplýsa hver maðurinn er.































Athugasemdir