Tíu nemendur útskrifuðust af leitar og björgunarkafaranámskeiði sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hélt í samstarfi við Landhelgisgæsluna og aðra viðbragðsaðila. Námskeiðinu lauk föstudaginn 30. október eftir fimm vikna þjálfun.
Samstarf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra um námskeiðið hefur staðið um árabil. Að þessu sinni voru engir nemendur frá ríkislögreglustjóra en tveir komu frá Brunavörnum Suðurnesja. Á síðasta námskeiði, sem haldið var fyrir ári, voru þrír nemendur þaðan.
Þar sem kafararnir sinna köfun sem hluta af launuðu starfi þurfa þeir atvinnuköfunarréttindi sem Samgöngustofa gefur út.
„Námskeiðið stendur yfir í fimm vikur og nemarnir útskrifast með réttindi til að kafa niður að 30 metra dýpi með sjálfbirgan búnað,“ segir í tilkynningu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Fyrstu vikuna skiptist námið á milli fyrirlestra og verkefnavinnu fyrir hádegi og æfinga í Ásvallalaug eftir hádegi. Í annarri viku fóru fram æfingar í sjó auk tveggja prófdaga þar sem nemendur þreyttu alls tíu próf. Síðustu þrjár vikurnar fóru æfingar fram í aðstöðu Landhelgisgæslunnar í Helguvík.
Mikil áhersla er lögð á leitaræfingar og mismunandi leitaraðferðir sem kafarar þurfa að geta beitt í raunverulegum verkefnum. Þá er einnig lögð áhersla á notkun afþrýstitaflna og öfluga samvinnu.
„Hópvinna er líka mjög mikilvæg, því það á ekki að skipta máli hverjum nemarnir eru merktir, það verða allir að leggja hönd á plóg,“ segir enn fremur.
Alls útskrifuðust tíu nemendur, fjórir frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, fjórir frá Landhelgisgæslunni og tveir frá Brunavörnum Suðurnesja.































Athugasemdir