Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Krafði Þorgerði svara vegna kjarnorkuummæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitt­hvert mál, þetta er grafal­var­legt mál,“ sagði Stefán Vagn

Krafði Þorgerði svara vegna kjarnorkuummæla Heimis Más
Deilt á Alþingi Á mynd­inni eru Stefán Vagn Stef­áns­son, Heimir Már Pét­urs­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir. Ummæli Heimis Más um kjarn­orku­vopn urðu að umræðu­efni á Alþingi. Mynd: Samsett / Víkingur / Aðsend

Harðar deilur urðu á Alþingi í dag vegna ummæla Heimis Más Pét­urs­sonar, fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Flokks fólks­ins, um kjarn­orku­vopn og stríðið í Úkraínu. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði afstöðu íslenskra stjórn­valda til kjarn­orku­vopna skýra og benti á að Heimir Már hefði beðist afsök­unar.

Málið kom til umræðu á Alþingi þegar Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurði utan­rík­is­ráð­herra út í ummæli Heimis Más.

Heimir Már hafði skrifað á sam­fé­lags­miðl­inum X og hvatt Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta til að senda her­menn til Úkraínu og hafa kjarn­orku­vopn til­búin. Hann hefur síðan eytt færsl­unni og beðist afsök­unar. Heimir Már sagði orða­lag sitt, og sér­stak­lega vís­un­ina til kjarn­orku­vopna, óaf­sak­an­legt.

Stefán Vagn sagði ummælin afar alvar­leg, ekki síst vegna stöðu Heimis Más innan eins rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Hann spurði utan­rík­is­ráð­herra hvort ummælin gætu skapað orð­spors­á­hættu fyrir Ísland og hvort málið hefði verið rætt innan rík­is­stjórn­ar­innar.

„Það er ekki hver sem er sem skrifar þetta á opin­beran vett­vang. Þetta er fram­kvæmda­stjóri stjórn­mála­flokks í rík­is­stjórn Íslands,“ sagði Stefán Vagn.

Þor­gerður Katrín sagði ummælin ekki sam­ræm­ast íslenskri utan­rík­is­stefnu. Hún lagði jafn­framt áherslu á stuðn­ing Íslands við Úkraínu og sagði afstöðu lands­ins til kjarn­orku­vopna liggja skýrt fyrir.

„Mér finnst gott að hann var fljótur að biðj­ast afsök­unar á þessu enda er stefna Íslands alveg skýr þegar kemur að kjarn­orku­vopnum,“ sagði Þor­gerður Katrín og bætti við að Ísland styddi afvopnun stór­veld­anna þegar kæmi að kjarn­orku­vopnum.

Stefán Vagn gerði athuga­semd við svarið og sagði spurn­ingu sína ekki snú­ast um stuðn­ing Íslands við Úkraínu heldur ábyrgð ein­stak­linga í áhrifa­stöðum þegar þeir tjá sig opin­ber­lega. Hann spurði hvort afsök­un­ar­beiðni Heimis Más væri nægi­leg við­brögð.

„Þetta er ekki bara eitt­hvert mál, þetta er grafal­var­legt mál,“ sagði Stefán Vagn.

Í síð­ara svari sínu ítrek­aði Þor­gerður Katrín að Heimir Már hefði beðist afsök­unar og dregið ummælin til baka. Hún beindi síðan sjónum að færslu Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, þar sem hann gagn­rýndi sam­eig­in­legt eft­ir­lit NATO á norð­ur­slóðum. Sagði hún fyrr­ver­andi for­ráða­mann íslenskra stjórn­valda hafa end­ur­birt þá færslu og gagn­rýndi að stjórn­ar­and­staðan hefði ekki gert athuga­semdir við það.

„Við stöndum með Úkraínu, við erum ekki að hossa Rússum og mér finnst merki­legt að eng­inn úr stjórn­ar­and­stöð­unni skuli hafa áhyggjur af þessu,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðni Guðmundsson skrifaði
    En er það ekki bara góð heilræði að hafa kjarnavopnin klár. Svona óþokkar eins og Pútin skilur bara hörku og gegnir ekkert nema að hinir hafi nógu stórt prik. Annars held ég að engin sé að hlusta á einhvern plebba í einhverjum flokk á einhverju gaddfreðnu skeri út í ballarhafi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum