Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Víkingur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist ekki hafa skýr­ingar á reiðum höndum á því hvers vegna hann hafi verið fjar­ver­andi í öllum 23 atkvæða­greiðslum sem fram hafa farið á Alþingi það sem af er þingi. Hann bendir þó á að atkvæða­greiðslur séu fáar í upp­hafi þings og að hann hafi tekið virkan þátt í umræðum.

Sig­mundur Davíð ræddi fjar­veru sína í ítar­legu við­tali við Vísi. Þar var hann spurður hvers vegna hann hefði ekki tekið þátt í neinni atkvæða­greiðslu á þing­inu til þessa.

„Allar atkvæða­greiðslur? Ég veit það ekki. Ég hef nú tekið þátt í umræð­unni meira en flestir en atkvæða­greiðslur fram að þessu hafa aðal­lega verið atkvæða­greiðslur um hvort leyfa skuli skýrslu eða eitt­hvað slíkt,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Hann sagði slíkar atkvæða­greiðslur hafa verið fáar, líkt og venja væri í upp­hafi þings, og taldi rétt­ara að leggja mat á mæt­ingu sína þegar þing­inu lyki.

Þegar honum var bent á að um 23 atkvæða­greiðslur væri að ræða og hann spurður hvort hann væri orð­inn þreyttur á þing­stör­f­unum svar­aði hann því neit­andi. Hann sagð­ist meðal ann­ars hafa verið erlendis í ferðum á vegum þings­ins og því misst af ein­hverjum atkvæða­greiðslum.

„Nei, en ég hef verið í ferðum erlendis með þing­inu og misst af ein­hverjum atkvæða­greiðslum þá en ég bara skal ekki segja, 23 atkvæða­greiðslur eru ekki mikið.“

Sig­mundur Davíð benti jafn­framt á að atkvæða­greiðsl­urnar yrðu lík­lega yfir þús­und áður en þing­inu lyki. Hann lagði áherslu á að hann hefði mætt reglu­lega í fyr­ir­spurna­tíma og verið meðal þeirra þing­manna sem mest hefðu tekið til máls í upp­hafi þings.

Mannlíf kann­aði þátt­töku Sig­mundar í atkvæða­greiðslum á síð­asta þingi. Var hann fjar­ver­andi 515 atkvæða­greiðslur, kaus Já 866 sinnum, kaus Nei 117 sinnum og sat hjá í 262 atkvæða­greiðslum sam­kvæmt vef Alþingis. Þýðir það að for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi tók ekki þátt í tæp­lega 30% af atkvæða­greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ

  • Pólitík

    Segja sjúk­linga nú bíða mun skemur eftir inn­lögn