Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Báðir hópar líta á fjöl­menn­ingu og fjöl­breyti­leika sem veik­leika og ógn.“

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Elliði Vign­is­son Guðný segir margt líkt með hóp­unum Mynd: Aðsend

Guðný Gúst­afs­dóttir, verk­efn­is­stjóri rann­sókna hjá Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, segir ýmis­legt sam­eig­in­legt með öfga­fullum ísla­mistum og öfga­hægri­mönnum. Báðir hóp­arnir skipti heim­inum upp í tvo and­stæða hópa, líti á fjöl­menn­ingu sem ógn og nýti sam­sær­is­kenn­ingar og hræðslu­á­róður til að rétt­læta afstöðu sína.

Guðný fjallar um þetta í Facebook-færslu þar sem hún ber saman stjórn­mála- og trúaröfgar hópanna. Við færsl­una birtir hún sam­setta mynd af Elliða Vign­is­syni, bæj­ar­stjóra Ölfuss, og gervi­greind­ar­mynd af Taqi Usmani, sem hélt fyr­ir­lestur í stór­mosku Félags múslima á Íslandi á dög­unum.

Í færsl­unni segir Guðný að báðir hóp­arnir skil­greini heim­inn út frá hug­mynd­inni um „okkur“ og „hina“ og líti á eigin hóp sem öðrum æðri.

„Báðir hópar setja sig og sinn hóp yfir aðra hópa,“ skrifar Guðný.

Hún segir öfga hægri­menn líta til for­tíð­ar­innar sem eins konar gull­aldar, þar sem íslenska þjóðin hafi orðið til með land­nám­inu. Þeir trúi á sterkan leið­toga og skil­greini þjóð­ina sem eins­leitan hóp fólks með sama tungu­mál og húð­lit. Fólk af erlendum upp­runa sé í þeirra augum ógn við til­vist hóps­ins.

„Öfga hægrið trúir á rætur menn­ingar þeirra liggi í „gullöld“ for­tíð­ar­innar. Á Íslandi var það þegar „feð­urnir frægu og frjáls­ræð­is­hetj­urnar góðu“ námu land og „þjóðin“ varð til. Öfga hægrið trúir á styrkan leið­toga þjóðar. Í þeirra huga „þjóðin“ eins­leitur hópur fólks með sama tungu­mál og húð­lit. „Útlend­ingar“ þ.e. fólk af öðrum lit með annað tungu­mál eru ógn við til­vist öfga hægr­is­ins.“

Guðný segir öfga ísla­mista sömu­leiðis horfa til for­tíð­ar­innar og upp­hafs­daga íslams sem gull­aldar. Þar hafi kalíf­arnir verið leið­togar múslima og hug­mynda­fræðin byggst á því að allir múslimar, óháð upp­runa eða kyn­þætti, skyldu heyra undir einn æðsta leið­toga.

Hún segir að öfga ísla­mistar skil­greini þá sem ekki aðhyllist trúna sem ógn við eigin hug­mynda­fræði.

„Öfga ísla­mistar trúa líka á eigin „gullöld“; forna tíma kalífa­dæmanna og upp­hafs­daga íslam. Kalíf­arnir voru eft­ir­menn Múhameðs spá­manns og leið­togar múslima. Kjarninn í hug­mynda­fræð­inni var að allir múslimar, óháð upp­runa eða kyn­þætti, ættu að heyra undir einn æðsta leið­toga. Skil­greind ógn við öfga ísla­mista eru hinir „van­trú­uðu“.“

Líta á fjölbreytileika sem ógn

Guðný telur sam­eig­in­legt með hóp­unum að þeir vilji eins­leitt sam­fé­lag og líti á fjöl­menn­ingu og fjöl­breyti­leika sem ógn.

„Báðir hópar eiga það sam­eig­in­legt að vilja eins­leitt sam­fé­lag. Báðir hópar líta á fjöl­menn­ingu og fjöl­breyti­leika sem veik­leika og ógn.“

Þá segir hún báða hópa nota sam­sær­is­kenn­ingar til að útskýra vanda­mál heims­ins og líta á sig sem fórn­ar­lömb þeirra sem þeir skil­greina sem and­stæð­inga sína.

Að lokum bendir hún á að sam­sær­is­kenn­ingar og hræðslu­á­róður séu nýtt til að ráð­ast á hina hópana og rétt­læta ofbeldi gegn þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ

  • Pólitík

    Segja sjúk­linga nú bíða mun skemur eftir inn­lögn