Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Þór­hildur Sunna rifjar upp ár sín á Alþingi

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir Tíu ár eru liðin frá því að Þór­hildur Sunna var kosin á Alþingi í fyrsta skiptið Mynd: Facebook

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, rifjar upp á Facebook að tíu ár séu liðin frá því hún náði fyrst kjöri á Alþingi. Hún seg­ist stolt­ust af því sem Píratar hafi áorkað í þágu gagn­sæis, mann­rétt­inda og lýð­ræðis, þrátt fyrir að flokk­ur­inn hafi aldrei kom­ist í rík­is­stjórn.

Þór­hildur Sunna var 29 ára þegar hún náði kjöri á þing og sat þar í átta ár. Hún segir tím­ann á Alþingi hafa verið lær­dóms­ríkan og að hún hafi barist af krafti fyrir mann­rétt­indum og gegn spill­ingu.

„Stoltust er ég af því sem Píratar áork­uðu þrátt fyrir að hafa aldrei kom­ist í stjórn; áherslu á gagn­sæi, mann­rétt­indi og lýð­ræði og bar­átt­una gegn spill­ingu sem var við­var­andi allan þennan tíma,“ skrifar hún.

Hún segir Pírata hafa barist fyrir því að upp­lýs­ingar sem vörð­uðu almenn­ing yrðu gerðar aðgengi­legar og að flokk­ur­inn hefði ávallt tekið upp hansk­ann fyrir jað­ar­setta hópa, jafn­vel þegar það var óvin­sælt og kost­aði flokk­inn atkvæði.

Segist sjá eftir ýmsu

Þór­hildur Sunna rifjar sér­stak­lega upp birt­ingu Lind­ar­hvols­skýrsl­unnar og segir að þá hafi hún ótt­ast að kerfið myndi snú­ast gegn sér.

„Þegar við birtum Lind­ar­hvols­skýrsl­una hélt ég að kerfið ætl­aði loks­ins að éta mig en svo tókst að þagga það mál niður eins og svo mörg spill­ing­ar­mál í gegnum tíð­ina,“ skrifar hún.

Hún seg­ist einnig sjá eftir ýmsu sem hún hefði viljað gera betur eða meira af á þing­ferl­inum. Sér­stak­lega hefði hún viljað geta aðstoðað fleiri ein­stak­linga sem leit­uðu til hennar með erfið og þung mál.

Þrátt fyrir áskor­an­irnar segir hún það hafa verið mikil for­rétt­indi að fá að þjóna kjós­endum og berj­ast fyrir þeim mál­efnum sem henni eru kær­ust.

Hún lýsir þing­mennsk­unni sem afar skemmti­legu en jafn­framt óvenju krefj­andi starfi.

„Það étur mann upp að innan og byggir mann upp á sama tíma,“ segir hún.

Þór­hildur Sunna seg­ist reglu­lega sakna þess að sitja á Alþingi, en þó sakni hún enn meira þess að heyra rödd mann­rétt­inda, nátt­úr­unnar og lýð­ræðis á þing­inu.

„Ég sakna þess reglu­lega að vera á þingi en ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda, nátt­úr­unnar og lýð­ræðis inn á þingi.“

Hún lýkur færsl­unni á þeirri von að sú rödd fái aftur að heyr­ast á Alþingi, í hvaða formi sem það verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ

  • Pólitík

    Segja sjúk­linga nú bíða mun skemur eftir inn­lögn