Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum

„Það var hins vegar líka mik­il­vægt að nota þetta tæki­færi til að ræða alþjóða­mál“

Kína vill efla tengslin við Ísland á lykilsviðum
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Mynd: Víkingur

Wang Yi, utan­rík­is­ráð­herra Kína, vill efla sam­starf Kína og Íslands á sviði við­skipta, jarð­hita, grænna umskipta og mál­efna norð­ur­slóða. Þetta kom fram á fundi hans með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra í Peking í gær en Anadolu greinir frá.

Fund­ur­inn fór fram í opin­berri heim­sókn Þor­gerðar Katrínar til Kína, sem stendur yfir dag­ana 26. til 31. októ­ber. Á þessu ári eru 55 ár liðin frá því að Ísland og Kína tóku upp stjórn­mála­sam­band.

Wang sagði Kína reiðu­búið að deila þró­un­ar­tæki­færum með Íslandi og kanna frek­ari mögu­leika á sam­starfi ríkj­anna. Nefndi hann sér­stak­lega við­skipti og efna­hags­mál, jarð­hita, græn umskipti, mál­efni hafs­ins og norð­ur­slóða. Þá vildi hann einnig efla sam­skipti ríkj­anna á sviði ferða­þjón­ustu, sam­eig­in­legra vís­inda­rann­sókna og mennt­unar.

Ráð­herr­arnir ræddu einnig alþjóða­mál. Wang lagði fyrir sitt leyti áherslu á fjöl­þjóða­sam­starf og hlut­verk Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Ég átti gott sam­tal við kín­verska utan­rík­is­ráð­herr­ann og tví­hliða sam­skipti Íslands og Kína standa á traustum grunni. Við ræddum aukið sam­starf á sviði orku­mála og það eru ýmis tæki­færi fyrir íslensk fyr­ir­tæki og íslenskt hug­vit í Kína, einkum þegar horft er til jarð­varma og grænna umskipta. Við ræddum einnig við­skipti með áherslu á fisk en langstærstur hluti útflutn­ings Íslands til Kína eru sjáv­ar­af­urðir. Fjöl­breytni vöru­út­flutn­ings fer þó vax­andi og það er vel. Straumur ferða­manna frá Kína til Íslands heldur einnig áfram að aukast og þess má vænta að sú þróun haldi áfram, m.a. með til­komu flugs milli Íslands og Kína. Ég vona einnig að Íslend­ingar nýti tæki­færið og heim­sæki þetta stór­brotna land sem Kína er,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu.

„Það var hins vegar líka mik­il­vægt að nota þetta tæki­færi til að ræða alþjóða­mál, enda blikur á lofti og brýnt að hvetja kín­versk stjórn­völd til að beita sér með jákvæðum hætti. Ég tók til að mynda sér­stak­lega upp árás­ar­stríð Rússa í Úkraínu og biðl­aði til Kínverja að beita áhrifum sínum á rúss­neska ráða­menn eins og hægt er,“ segir hún enn fremur.

Ísland og Kína tóku upp stjórn­mála­sam­band árið 1971. Ríkin und­ir­rit­uðu frí­versl­un­ar­samn­ing árið 2013 og tók hann gildi árið eftir. Ísland varð þar með fyrsta Evr­ópu­ríkið til að gera slíkan samn­ing við Kína. Á fund­inum lýsti Þor­gerður Katrín vilja Íslands til að vinna með Kín­verjum að upp­færslu frí­versl­un­ar­samn­ings­ins og dýpka sam­starfið meðal ann­ars á sviði sjáv­ar­út­vegs, jarð­hita, grænnar orku og norð­ur­slóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ

  • Pólitík

    Segja sjúk­linga nú bíða mun skemur eftir inn­lögn