Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

„Gætu mögu­lega ýtt vænt­an­legum kaup­endum frá sér með því að bjóða upp á þessar myndir“

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Mynd úr alvöru fast­eigna­aug­lýs­ingu

Greini­leg aukn­ing hefur orðið á notkun fals­aðra ljós­mynda í fast­eigna­aug­lýs­ingum hér á landi, þar sem gervi­greind er notuð til að breyta raun­veru­legum ljós­myndum af eignum eða skapa nýja ásýnd þeirra.

Mannlíf hefur fylgst ítar­lega með fast­eigna­aug­lýs­ingum und­an­farna 18 mán­uði og á þeim tíma hefur þró­unin verið hröð. Við upp­haf tíma­bils­ins var afar fágætt að sjá fals­aðar ljós­myndir sem gerðar höfðu verið með gervi­greind en nú birt­ast slíkar myndir reglu­lega í nýjum fast­eigna­aug­lýs­ingum, jafn­vel oft í hverri viku.

Hér er ekki átt við hefð­bundnar tölvu­teikn­ingar sem sýna hvernig óbyggt eða óklárað hús­næði gæti litið út þegar fram­kvæmdum lýkur. Um er að ræða ljós­myndir af raun­veru­legum og full­byggðum fast­eignum sem hefur verið breytt með gervi­greind þannig að það sem birt­ist á mynd­inni er að hluta til ekki til staðar í eign­inni.

Í sumum til­fellum er hús­gögnum og öðrum lausa­munum bætt inn á ljós­myndir af tómum rýmum. Í öðrum til­fellum ganga breyt­ing­arnar lengra og geta náð til hluta fast­eign­ar­innar sjálfrar, svo sem gól­f­efna eða fastar inn­rétt­ingar. Þannig verður til ljós­mynd sem byggir á raun­veru­legu rými en sýnir ekki að öllu leyti raun­veru­legt ástand þess.

Sama her­bergið birt­ist á mis­mun­andi máta í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Miklar umræður sköp­uð­ust á sam­fé­lags­miðlum í sept­em­ber um sið­ferði slíkrar mynd­birt­ingar eftir að fast­eigna­salan Pálsson not­að­ist við tvær fals­aðar ljós­myndir sem unnar höfðu verið með gervi­greind. Hvergi kom fram í aug­lýs­ing­unni að mynd­irnar hefðu verið fals­aðar eða þeim breytt með þessum hætti.

„Það er til að sýna fram á að hlutir kom­ist fyrir inn í henni, hún er tóm og til­búin til afhend­ingar,“ sagði Edwin Árnason, fast­eigna­sali hjá Pálsson, við Mannlíf í fyrra þegar hann var spurður hvers vegna þessi leið hefði verið farin.

„Þetta er fal­legra en hafa þær tómar, þetta er ekki flókið.“

Aðspurður hvort honum þætti notkun fals­aðra ljós­mynda með þessum hætti geta verið blekkj­andi sagði Edwin svo ekki vera.

„Við höfum öll okkar skoð­anir á þessum hlutum. Mér finnst það ekki. Ég myndi ekki nota orðin „að blekkja“. Fólk er ekki að kaupa hús­gögn, fólk er að kaupa íbúð. Það er bara verið að sýna mögu­leik­ann á rým­inu.“

Mannlíf benti þá á að parket sem fylgdi íbúð­inni virt­ist einnig vera í mun betra ástandi á fölsuðu ljós­mynd­inni en á raun­veru­legum myndum af eign­inni.

„Það sést á hinum mynd­unum að par­k­etið er ekki stór­glæsi­legt og einnig sést þetta þegar fólk kemur og skoðar. Það gera sér allir grein fyrir því sem koma og skoða eign­ina að par­k­etið var ekki í lagi þannig að í alla­vega þetta skipti slapp það.“

Auðunn kallaði þetta pínu scam

Tón­list­ar­mað­ur­inn Auðunn Lúth­ers­son vakti einnig athygli á notkun fals­aðra ljós­mynda þegar hann seldi íbúð sína við Leifs­götu 10 í jan­úar.

Þá höfðu verið teknar ljós­myndir af íbúð­inni en gervi­greind síðan notuð til þess að breyta þeim og bæta meðal ann­ars hús­gögnum og öðrum munum inn í rýmin. Útkoman voru þannig myndir sem litu út eins og ljós­myndir af íbúð­inni þótt hluti þess sem sást á þeim hefði aldrei verið fyrir framan mynda­vél­ina.

„Ég er að selja íbúð mína að Leifs­götu 10 og það er búið að taka þessar fal­legu myndir af íbúð­inni, nema hvað það er alveg pínu „scam“,“ sagði Auðunn.

„Það er lenskan núna í fast­eigna­sölu að maður taki bara fal­legar ljós­myndir af íbúð­inni tómri, svo er notuð gervi­greind til að teikna inn hús­gögn og ég skil það alveg smá. Það gefur aðeins skýr­ari hvernig það væri að búa í íbúð­inni en maður sjái bara ein­hver tóm her­bergi en ég veit það ekki. Þetta er alveg pínu for­vitni­leg þróun.“

Auðunn spurði fylgj­endur sína í kjöl­farið hvort þeim þætti þetta vera svindl eða hvort slík notkun gervi­greindar væri í góðu lagi.

Mannlíf ræddi einnig við Grétar Jónasson, fram­kvæmda­stjóra Félags fast­eigna­sala, sem sagði notkun slíkra mynda kalla á ítar­lega umræðu, bæði út frá lögum og siða­reglum, enda byði tæknin upp á mikla mögu­leika til að breyta ljós­myndum.

Til stóð að taka málið fyrir á stjórn­ar­fundi Félags fast­eigna­sala en Grétar svar­aði ekki fyr­ir­spurnum Mannlífs þegar leitað var eftir upp­lýs­ingum um nið­ur­stöðu þeirrar umræðu.

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna, hefur jafn­framt sagt það mat sam­tak­anna að taka verði fram þegar myndir sem birt­ast í fast­eigna­aug­lýs­ingum eru gerðar með gervi­greind.

Mannlíf hefur síðan rætt við nokkra selj­endur fast­eigna þar sem fals­aðar ljós­myndir hafa verið not­aðar. Flestir þeirra segja hug­mynd­ina hafa komið frá fast­eigna­söl­unum sjálfum og benda meðal ann­ars á að erf­ið­ara sé að selja fast­eignir nú en áður.

Málið er jafn­framt umdeilt innan fast­eigna­sölu­stétt­ar­innar. Mannlíf ræddi við þrjá fast­eigna­sala sem ekki vildu koma fram undir nafni. Sumir þeirra telja að notkun fals­aðra ljós­mynda geti grafið undan trausti til fast­eigna­sala en aðrir telja verið að gera úlf­alda úr mýflugu.

Getur ýtt kaupendum frá

Henry Alex­ander Henrys­son, sið­fræð­ingur og doktor í heim­speki, segir erfitt að fella almennan sið­ferði­legan dóm yfir notkun gervi­greindar enda sé tæknin þegar sam­ofin hvers­dags­legri notkun fólks á tölvum og snjall­tækjum en öðru máli geti hins vegar gegnt þegar farið er sér­stak­lega inn í for­rit skap­andi gervi­greindar og tæknin látin skapa eða breyta efni fyrir not­and­ann.

Þegar kemur að fast­eigna­aug­lýs­ingum segir Henry hægt að færa ákveðin rök fyrir því að nota tækn­ina til þess að sýna mögu­lega nýt­ingu rýmis. Til dæmis þurfi þá ekki að flytja hús­gögn á milli staða ein­göngu til þess að mynda eign.

Mörkin séu hins vegar skýr þegar farið er að breyta fast­eign­inni sjálfri á mynd­inni.

„Til dæmis væri ámæl­is­vert að láta rými stækka eða breyta lögun þess í mynd­vinnsl­unni. Eitt er að færa til og breyta um lausa­muni, það er annað að ljúga til um eðli og gerð hús­næð­is­ins.“

Henry bendir á að ljós­mynd­arar hafi lengi getað notað tækni sína til að láta rými virð­ast stærri en þau raun­veru­lega eru. Gervi­greind megi hins vegar ekki verða til þess að breyta fast­eign­inni sjálfri.

„Góðir ljós­mynd­arar hafa í gegnum tíð­ina getað látið rými virð­ast stærri en þau eru. Tæknin má ekki gera rýmin stærri en þau eru.“

Þá þurfi sá sem notar tækn­ina sjálfur að bera ábyrgð á nið­ur­stöð­unni.

„Forritin eru auð­vitað gervi­greind og búa ekki yfir neins konar dóm­greind. Sá sem nýtir sér þau getur ekki búist við að allt sé leyfi­legt sem þau kasta út úr sér.“

Henry telur lík­legt að gervi­greind­ar­breyttar ljós­myndir verði meira áber­andi í fast­eigna­aug­lýs­ingum til skamms tíma en að fast­eigna­sölu­stéttin muni að lokum þurfa að móta sér skýr­ari sið­ferði­leg við­mið.

Kaup­endur muni einnig hafa áhrif á hversu langt fast­eigna­salar geti gengið.

„Mögulega verður ein­hver toppur núna á næst­unni meðan jafn­vægi er náð, en mig grunar að eft­ir­spurnin eftir skap­andi mynd­vinnslu komi ekki frá kaup­endum – enda ekki þeim í vil.“

Hann telur jafn­framt að fast­eigna­salar geti tekið ákveðna áhættu með því að birta fals­aðar ljós­myndir af eignum sem þeir hafa til sölu.

„Að lokum verður það svo að fast­eigna­salar eru jafn­vel að taka áhættu og gætu mögu­lega ýtt vænt­an­legum kaup­endum frá sér með því að bjóða upp á þessar myndir,“ segir Henry að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina