Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Selja íbúðir með gervigreindarmyndum

Telja sumir að slíkt brjóti mögu­lega gegn siða­reglum fast­eigna­sala

Selja íbúðir með gervigreindarmyndum
Íbúð til sölu í Breið­holti 57.600.000 króna voru settar á hana. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Miklar umræður hafa skap­ast á sam­fé­lags­miðlum um sið­ferði í fast­eigna­aug­lýs­ingum eftir að fast­eigna­salan Pálsson not­að­ist við tvær myndir sem voru gerðar með gervi­greind. Hér á ekki við um tölvu­teikn­aðar myndir af ókláruðum húsum eins og margir kann­ast við heldur af íbúð sem hefur verið til í marga ára­tugi og til eru ljós­myndir af.

Aug­lýs­ingin sem um ræðir er ekki á sölu­skrá eins og er en hægt að er nálg­ast hana hér. Hvergi kemur fram í aug­lýs­ing­unni að not­ast hafi verið við gervi­greind.

Mikill munur er á mynd­unumÖðruvísi parket, ofn og tré eru dæmi um hverju hefur verið breytt ásamt hús­gögnum
Stofan eins og hún lítur í alvöru út

Finnst notkunin ekki blekkjandi

„Það er til að sýna fram á að hlutir kom­ist fyrir inn í henni, hún er tóm og til­búin til afhend­ingar,“ sagði Edwin Árnason, fast­eigna­sali hjá Pálsson, við Mannlíf þegar hann var spurður af hverju þetta hafi verið gert. „Þetta er fal­legra en hafa þær tómar, þetta er ekki flókið.“

Edwin segir að þetta sé af og til gert með tómar eignir því íbúðir séu svo hrár án hús­gagna.

„Við höfum öll okkar skoð­anir á þessum hlutum,“ sagði fast­eigna­sal­inn þegar hann var spurður hvort þetta væri blekkj­andi. „Mér finnst það ekki. Ég myndi ekki nota orðin „að blekkja“. Fólk er ekki að kaupa hús­gögn, fólk er að kaupa íbúð. Það er bara verið að sýna mögu­leik­ann á rým­inu.“

En nú fylgir par­k­etið með og það er greini­lega í miklu betra ástandi á gervi­greind­ar­mynd­inni, er það ekki furðu­legt?

„Það sést á hinum mynd­unum að par­k­etið er ekki stór­glæsi­legt og einnig sést þetta þegar fólk kemur og skoðar. Það gera sér allir grein fyrir því sem koma og skoða eign­ina að par­k­etið var ekki í lagi þannig að í alla­vega þetta skipti slapp það.“

Blaða­maður Mannlífs benti á að gervi­greind­ar­myndin hafi verið aðal­myndin í aug­lýs­ing­unni á fast­eigna­vef Vísis og spurði um ástæðu þess.

„Þetta er fal­leg­asta myndin að mínu mati,“ sagði Edwin. „Þú sérð að þetta er tölvu­gert. Það er algjör­lega aug­ljóst, finnst mér per­sónu­lega.“

Hluti af siða­reglum fast­eigna­salaMögulega hafa þær verið brotnar.

Gervigreind verður tekin fyrir á fundi fasteignasala

Mannlíf ræddi við Grétar Jónasson, fram­kvæmda­stjóra Félags fast­eigna­sala, sem sagði að notkun á gervi­greind­ar­myndum þarfn­ist ítar­legrar umræðu bæði í sam­hengi gagn­vart lögum og siða­regla enda bjóði tæknin upp á ótrú­lega hluti. Þá sagði hann að málið yrði rætt á stjórn­ar­fundi félags­ins í vik­unni.

„Það er eflaust ekki hægt að koma í veg fyrir að gervi­greind sé notuð í fast­eigna­aug­lýs­ingum en að okkar mati ætti að koma fram ef svo er,“ sagði Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna, við Mannlíf.

„Ef verið er að fiffa myndir er hugs­an­lega hægt að líta á það sem vill­andi mark­aðs­setn­ingu.“

Önnur gervi­greind­ar­mynd í aug­lýs­ing­unni
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlent

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina