Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

„Moskan hefur hvorki dóms­vald né hlut­verk í beit­ingu refs­inga af neinu tagi“

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Stór­moskan á Íslandi Mynd: Stórmoskan

Stór­moskan við Bústaða­veg seg­ist ekki hafa boðið pakist­anska trú­ar­leið­tog­anum Muhammad Taqi Usmani til Íslands og að ekk­ert sér­stakt mat hafi verið lagt á umdeildar skoð­anir hans áður en hann flutti trú­ar­legan fyr­ir­lestur í mosk­unni í síð­ustu viku.

Þetta kemur fram í svörum Karim Askari, fram­kvæmda­stjóri Stofn­unar múslima á Íslandi, við fyr­ir­spurn Mannlífs.

Morg­un­blaðið greindi frá því að Usmani hefði flutt trú­ar­legan fyr­ir­lestur á sam­komu Stór­mosk­unnar við Bústaða­veg á mið­viku­dag í síð­ustu viku. Í frétt mið­ils­ins var meðal ann­ars fjallað um skrif Usmani þar sem tekið er fram að hann hafi varið dauða­refs­ingu fyrir trú­hvarf frá íslam, auk þess sem fjallað var um afstöðu hans til refs­inga á borð við aflim­anir og grýt­ingu sam­kvæmt íslömskum rétti.

Aðspurður hver hefði boðið Usmani segir Karim að hvorki Stofnun múslima á Íslandi né Stór­moskan hafi form­lega boðið honum.

„Hann var í einka­ferð um Norð­ur­lönd og heim­sókn hans í mosk­una var skipu­lögð eftir að einn af aðstoð­ar­mönnum hans hafði sam­band við með­lim í sam­fé­lag­inu á Íslandi,“ segir Karim. Fyr­ir­lest­ur­inn hafi verið trú­ar­legs eðlis og ætl­aður safn­að­ar­með­limum.

Karim segir að moskan hafi ekki fram­kvæmt sér­stakt mat á fræði­legum, laga­legum eða póli­tískum skoð­unum Usmani áður en heim­sóknin fór fram.

„Heim­sóknin var skipu­lögð sem stutt trú­ar­leg heim­sókn og fyr­ir­lestur fyrir safn­að­ar­fólk.“

Ekkert sérstakt áhættumat

Usmani er fyrr­ver­andi dóm­ari við sjar­ía­á­frýj­un­ar­deild Hæsta­réttar Pakist­ans og áhrifa­mik­ill fræði­maður innan Deobandi hreyf­ingar súnní múslima sam­kvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins. Þá segir fjöl­mið­ill­inn frá því að hann hafi meðal ann­ars hafnað því í skrifum sínum að dauða­refs­ing fyrir trú­ar­frá­hvarf eigi aðeins við þegar trú­hvarfi fylgi upp­reisn eða hryðju­verk.

Mannlíf spurði hvort Stór­moskan tæki afdrátt­ar­laust afstöðu gegn dauða­refs­ingu vegna trú­hvarfs. Karim svar­aði að Stofnun múslima á Íslandi starf­aði sam­kvæmt íslenskum lögum og virti stjórn­ar­skrár­varin rétt­indi.

„Moskan hefur hvorki dóms­vald né hlut­verk í beit­ingu refs­inga af neinu tagi og styður að sjálf­sögðu að allir njóti þeirra rétt­inda sem íslensk lög tryggja,“ segir hann.

Usmani var ekki spurður um trú­hvarf, dauða­refs­ingar eða trú­frelsi meðan á heim­sókn hans stóð. Karim segir þau mál­efni ekki hafa komið til umræðu, hvorki á fund­inum né í fyr­ir­lestr­inum.

Ekkert form­legt áhættu­mat fór heldur fram vegna heim­sókn­ar­innar.

„Engin form­leg umræða eða sér­stakt áhættu­mat af því tagi fór fram þar sem heim­sóknin var ekki skipu­lögð sem opin­ber ráð­stefna eða vett­vangur fyrir póli­tíska umræðu, heldur sem trú­ar­leg heim­sókn gesta­fyr­ir­les­ara,“ segir Karim.

Skoðanir Usmani ekki afstaða moskunnar

Stór­moskan vill ekki leggja mat á hvort umfjöllun Morg­un­blaðs­ins gefi rétta mynd af skoð­unum Usmani. Karim segir slíkt mat þurfa að byggj­ast á frum­heim­ildum og skýr­ingum Usmani sjálfs. Moskan geti því hvorki stað­fest né hrakið ein­stakar túlk­anir í frétta­flutn­ingi.

Karim segir jafn­framt að Morg­un­blaðið hafi ekki haft sam­band við mosk­una áður en fréttin var birt.

Hann leggur áherslu á að skoð­anir Usmani verði ekki lagðar að jöfnu við afstöðu íslamska trú­fé­lags­ins.

„Það sem við getum hins vegar stað­fest er að umfjöll­unin fjallar um skoð­anir og skrif ein­stak­lings sem moskan bauð ekki til lands­ins og að þær skoð­anir eru ekki sjálf­krafa afstaða Stofn­unar múslima á Íslandi eða Stór­mosk­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi