Úkraínskir drónar réðust á olíuhreinsistöðina Slavneft-YANOS í Jaroslavl í nótt og kviknaði í kjölfarið mikill eldur í verksmiðjunni. Myndir og myndskeið sem sjónarvottar hafa birt sýna að minnsta kosti sjö elda á svæðinu, fimm stóra og tvo minni, að því er óháða Telegram-rásin Astra greinir frá.
Mikhail Yevrayev, ríkisstjóri Jaroslavl-héraðs, greindi frá því á samfélagsmiðlum að innviðir olíuhreinsistöðvarinnar hefðu orðið fyrir skemmdum í árásinni og að tveir starfsmenn verksmiðjunnar hefðu hlotið áverka af völdum sprengjubrota.
Hann sagði einnig að rúður hefðu brotnað í nokkrum fjölbýlishúsum og einbýlishúsum vegna „brota“ úr drónum sem skotnir hefðu verið niður. Þá hefðu bifreiðar einnig orðið fyrir skemmdum.
Samkvæmt Yevrayev voru alls 124 drónar sem réðust á borgina skotnir niður.
Árás úkraínsku drónanna varð til þess að umferð var stöðvuð í nokkrar klukkustundir á veginum frá Jaroslavl í átt að Moskvu, á svæðinu þar sem olíuhreinsistöðin er staðsett. Þá var leiðum almenningssamgangna einnig breytt.
Olíuhreinsistöðin Slavneft-YANOS er sú fimmta stærsta í Rússlandi miðað við afkastagetu. Hún getur unnið allt að 15 milljónir tonna af hráolíu á ári.
Úkraínskir drónar hafa ítrekað gert árásir á olíuhreinsistöðina í Jaroslavl.





































Athugasemdir