Mikill verðmunur er á umfelgun og dekkjaskiptum hjá íslenskum dekkjaverkstæðum samkvæmt nýjum verðkönnunum verðlagseftirlits ASÍ. Allt að 22.475 krónur geta skilið að hæsta og lægsta verð þegar skipt er um dekk á fólksbíl með 22 tommu felgum.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð hjá 29 fyrirtækjum á tímabilinu 13. til 26. október. Skoðuð voru verð fyrir mismunandi felgustærðir og bílaflokka, en í samanburðinum eru yfir eitt þúsund verð frá fyrirtækjum á tíu stöðum á landinu.
Mesti verðmunurinn reyndist vera á umfelgun 22 tommu dekkja. Þar var lægsta verðið 13.900 krónur en það hæsta 36.375 krónur, sem jafngildir 161,7% mun. Fyrir 16 tommu felgur getur munað 6.000 krónum, eða 54,6%.
Þúsundir króna á milli verkstæða
Fyrir smábíla með 12–13 tommu felgur var lægsta verðið 8.990 krónur hjá Bílaverkstæðinu No22 í Reykjavík. Hæsta verðið var hjá N1, en verð þeirra miðast við 10–16 tommu felgur.
Fyrir 14–16 tommu felgur var lægsta verðið 10.990 krónur hjá Fastparts í Hafnarfirði en það hæsta 16.990 krónur hjá N1.
Á 17 tommu felgum var lægsta verðið 12.900 krónur hjá No22 en hæsta verðið, 19.990 krónur, hjá N1, Betridekk og Kletti.
Fyrir stærri felgur var verðmunurinn enn meiri. Pitstop á Selfossi bauð umfelgun fólksbíla á 13.900 krónur óháð dekkjastærð og var því með lægsta verðið í samanburði fyrir 18–22 tommu felgur. Hæsta verðið fyrir 20 tommu felgur var 31.760 krónur hjá Dekkjahöllinni og fyrir 22 tommu felgur 36.375 krónur hjá MAX1 Bílavaktinni.
ASÍ bendir á að heimili með tvo fólksbíla á 16 tommu felgum geti sparað 12.000 krónur í einni umfelgun með því að velja lægsta verðið í stað þess hæsta. Ef báðir bílar fara tvisvar á ári í umfelgun getur munurinn numið 24.000 krónum.
Verðmunur einnig mikill á jeppum
Svipaða sögu er að segja af umfelgun jepplinga og jeppa. Fyrir óbreyttan jeppa eða jeppling á 16 tommu felgum var lægsta verðið 10.990 krónur hjá Fastparts en það hæsta 19.990 krónur hjá Betridekk. Munurinn nemur 81,9%.
Fyrir 20 tommu felgur var verðbilið frá 15.490 krónum hjá MN Bílaverkstæði upp í 31.760 krónur hjá Dekkjahöllinni.
Á breyttum jeppa með 35 tommu dekkjum var lægsta verðið 20.490 krónur hjá MN Bílaverkstæði en hæst 29.990 krónur hjá N1 og Kletti.
Dekkjaskipti geta verið ódýrari en umfelgun
Þegar sumar- og vetrardekk eru á sérfelgum er verð á dekkjaskiptum, með jafnvægisstillingu, á bilinu 9.990 til 12.490 krónur fyrir fólksbíla á 16 tommu felgum. Fyrir 17 tommu felgur er verðið 10.490 til 14.490 krónur.
Hjá BL Hraðþjónustu, MN Bílaverkstæði og N1 eru hjólaskipti 5.000 til 7.000 krónum ódýrari en umfelgun fyrir þessar felgustærðir. Ef skipt er tvisvar á ári getur sparnaðurinn numið 10.000 til 14.000 krónum á bíl.
ASÍ bendir þó á að við ákvörðun um að eiga tvö felgusett þurfi einnig að taka mið af kostnaði við kaup á aukafelgum, geymslu og viðhaldi.
Afslættir og aukagjöld hafa áhrif
Verðkönnunin tekur ekki tillit til skilyrtra afslátta. Dekkjahöllin býður til dæmis 12% afslátt við kaup á dekkjum og MAX1 veitir 15% afslátt af umfelgun þegar keypt eru fjögur dekk. Hjá N1 geta korthafar fengið afslátt og safnað punktum.
Neytendur þurfa einnig að kanna hvort verð miðist við ál- eða stálfelgur og hvort aukagjöld séu fyrir lágprófíldekk eða stærri bíla.
ASÍ ráðleggur fólki að gefa upp rétta felgustærð, bílaflokk og gerð felgna við bókun og óska eftir staðfestu heildarverði.
Hægt er að bera saman verð á umfelgun og dekkjaskiptum á vefsíðunni dekkjaskiptin.is.
Verðkönnunin byggist á verðskrám 29 fyrirtækja á tíu stöðum á landinu og sýnir verð eins og þau voru skráð dagana 13. til 26. október 2026. Ekki var lagt mat á gæði þjónustunnar.
Hægt er að nálgast töflu með öllum verðum hér: Umfelgun – Infogram.































Athugasemdir