Leikkonan og skemmtikrafturinn Björk Guðmundsdóttir á von á barni með Rúnari Áka Emilssyni. Björk greindi sjálf frá gleðitíðindunum og ljóst er að mikil eftirvænting ríkir hjá verðandi foreldrunum.
„Lítið kraftaverkabarn á leiðinni sem verður fullbakað í maí❤️ Litla regnbogabarnið okkar, þú ert svo innilega velkomið 🌈,“ skrifar Björk á Instagram.
Björk er mörgum kunn úr íslensku sjónvarpi og af leiksviðinu. Hún útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2021 og er einn af lykilmeðlimum Improv Íslands.
Björk hefur starfað sem leikkona, handritshöfundur og skemmtikraftur. Hún lék Dísu í aðalhlutverki í Flamingo bar, Birnu Höskuldsdóttur menntamálaráðherra í Í versta falli og Betu í Skvíz. Hún hefur einnig birst í sketsum og auglýsingum.
Nú er hins vegar stærsta hlutverkið fram undan utan sviðsins þegar Björk og Rúnar Áki taka á móti litla regnbogabarninu sínu í maí.






























Athugasemdir