Samherji fiskeldi ehf. hefur stofnað nýtt félag, Eldisgarð Inn ehf., samkvæmt nýskráningu í hlutafélagaskrá. Félagið er með heimili á Akureyri.
Tilgangur félagsins samkvæmt skráningu er rekstur vinnubúða með gistingu og veitingaþjónustu auk annars skylds rekstrar.
Jón Kjartan Jónsson er stjórnarmaður og framkvæmdastjóri félagsins en Jón Rafn Ragnarsson er varamaður í stjórn. Báðir fara jafnframt með prókúruumboð.
Samherji fiskeldi er skráður eini stofnandi hins nýja félags á Akureyri.


























Athugasemdir